151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

ávana- og fíkniefni.

714. mál
[18:10]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Sá dimmi veruleiki fer að renna upp fyrir mér að ég muni ekki skilja þetta. Ég held hins vegar að það sé ekki vandamálið heldur er vandamálið rökleysan í málflutningnum, með fullri virðingu. Þetta eru vond rök. Hv. þingmaður nefndi tvær ástæður fyrir því að hann væri mótfallinn þessu frumvarpi. Önnur er að neysluskammtur komi ekki fram og það eigi að koma fram í reglugerð. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Er hann í alvörunni þeirrar skoðunar að það ætti að setja tiltekna skammta í lög? Segjum að neyslumynstrið myndi breytast, það myndi minnka. Einhver langt leiddur í kannabisneyslu noti þrjú grömm á dag, segjum það, og við reiknum einhvern neysluskammt út frá því, fimm daga, tíu daga eða hvað það er. Svo gerist það af einhverjum ástæðum að meðalneysluskammturinn fer að minnka niður í eitt gramm þannig að við myndum væntanlega þurfa að uppfæra töluna. Vill hv. þingmaður í alvörunni hafa það í landslögum þannig að við þurftum að fara að rökræða einhver tæknileg útfærsluatriði á þingi? Þetta er nákvæmlega sú tegund af tæknilegum útfærsluatriðum sem eiga heima í reglugerð vegna þess að þetta er eitthvað sem breytist, er eitthvað sem verður mjög auðveldlega fyrir áhrifum af nýjum upplýsingum eða breytingum á markaðnum. Þetta er ástæðan. Huggar þetta hv. þingmann, er hann núna hlynntur málinu? Nei.

Hv. þingmaður nefndi annað atriði sem er það að einn skammtur af tilteknu vímuefni geti drepið. Hv. þingmaður er væntanlega ekki að tala um LSD eða kannabisefni eða sveppi, eða hvað er hv. þingmaður að tala um, er hann að tala um ecstacy? Getur hann farið aðeins nánar út í það hvernig nákvæmlega þessi rök gera það að verkum að við ættum að refsa fólki sem notar þessi efni? Og vel á minnst, segjum að einhver taki eitthvert vímuefni sem getur drepið af einum skammti, eflaust er það til, ef slíkt kæmi upp eftir að þessi lög væru samþykkt, teldi hv. þingmaður að við hefðum frekar átt að refsa viðkomandi? Vill hv. þingmaður frekar að neytandi sem taki of stóran skammt sé hræddur við að leita sér hjálpar? Það er staðan í dag, virðulegi forseti. Finnst hv. þingmanni það betra?