ávana- og fíkniefni.
Virðulegi forseti. Ég á pínulítið erfitt með að skilja hvers vegna hv. þingmaður telur nauðsynlegt að líta til refsileysisins í einhverju allt öðru samhengi ef hann er á annað borð á þeirri skoðun að það eigi að vera refsilaust eða refsilítið að vera með litla skammta. Eru áhyggjur hv. þingmanns þær að ef refsingarnar verða nógu litlar eða engar fyrir vörslu á neysluskömmtum muni það verða til þess að fólk sem á nú við vanda að stríða en sækir sér ekki hjálp, muni þá fara að sækja sér hjálp? Ef það er orsakasamhengið sem hv. þingmaður hefur áhyggjur af þá undirstrikar það nauðsyn þess að afglæpavæða fyrst og strax, vegna þess að þá er bersýnilegt að lögin í dag meina fólki að leita sér aðstoðar, sem hlýtur að vera sami vandi og að hafa einfaldlega lokað lengur á meðferðarheimilum eða lengri biðlista. Áhrifin eru þau sömu, þau eru neikvæð. Það getur ekki verið neinn ágreiningur um að slík áhrif séu neikvæð. Eða eru áhyggjur hv. þingmanns þær að með því að gera þessa litlu skammta refsilausa eða refsilitla verði einhver sprenging í vímuefnaneyslu, sprenging í nýliðun? Hann ýjaði að því í lok síðustu ræðu sinnar, virðulegi forseti, en það er á skjön við rannsóknirnar sem hæstv. heilbrigðisráðherra hefur ítrekað vísað í. Væntanlega eru þær rannsóknir þá einhvern veginn rangar. Það hefur ekki sýnt sig samkvæmt þeim að með því að afglæpavæða neysluskammta eða vörslu þeirra aukist nýliðun í vímuefnaneyslu umtalsvert.
Ég velti því fyrir mér hverju nákvæmlega í þessu orsakasamhengi hv. þingmaður hefur áhyggjur af og að hvaða leyti það orsakasamhengi undirstrikar ekki einmitt mikilvægi þess að leggjast í þessa breytingu, alveg óháð því hvort við eflum líka forvarnir og meðferðarúrræði, hvort tveggja hygg ég að sé samstaða um að gera og það hefur reyndar verið gert. Við stöndum okkur t.d. ágætlega í forvörnum ef út í það er farið. Ég ætla að skilja hv. þingmann eftir með þessa spurningu.