rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018, um rafrettur, og áfyllingar fyrir rafrettur. Frumvarp þetta var samið í heilbrigðisráðuneytinu í þeim tilgangi að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum og fella þær undir lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Undanfarin misseri hafa heilbrigðisráðuneytinu borist fjölmörg erindi er varða nikótínpúða og fyrirspurnir um lagaumhverfi þeirra og hugsanlega leyfisskyldu fyrir lög og markaðssetningu þeirra. Ráðuneytinu hafa einnig borist erindi frá eftirlitsstofnunum með vörum á íslenskum markaði þar sem stofnanir hafa lýst vandkvæðum á flokkun slíkra vara í núgildandi lagaumhverfi. Nauðsynlegt er að bæta úr þessu þar sem um er að ræða vörur sem geta innihaldið nokkurt magn nikótíns sem talið er vera ávanabindandi efni. Hér skiptir máli að bæði innflytjendur og seljendur nikótínvara hafa kallað eftir því að reglur verði settar um slíkar vörur. Því er mikilvægt að um nikótínvörur, sem markaðssettar eru sem tóbakslausar og eru komnar á markað á Íslandi, gildi skýrar reglur. Einnig hefur borið á því að börn hafi neytt slíkra vara en það getur valdið eitrun ef nikótínmagn er mikið. Mikilvægt er að tryggja heilsu og öryggi barna með skýrum reglum um hvernig heimilt sé að markaðssetja slíkar vörur.
Í frumvarpinu er lagt til að eftirlit með öryggi varanna og merkingu verði í höndum Neytendastofu, en frá 1. október nk. verður það í höndum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar Lagt er til að sömu reglur gildi um aldurstakmark fyrir kaup og sölu á nikótínvörum og þegar gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær, þannig að einungis einstaklingum 18 ára og eldri verði heimilt að kaupa og selja nikótínvörur. Lagt er til að óheimilt verði að hafa á umbúðum nikótínvara texta eða myndmál sem geti höfðað sérstaklega til barna og ungmenna, t.d. með myndskreytingum eða slagorðum og geti mögulega hvatt til neyslu nikótínvara, líkt og þegar gildir um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.
Verði frumvarpið að lögum verður sett reglugerð um leyfilegan hámarksstyrkleika nikótíns í nikótínvörum og verður því við þá vinnu litið til þess hvaða áhrif nikótín getur haft á einstakling. Í því sambandi skal gæta að því að upptaka nikótíns úr vöru sé ekki meiri en fæst af leyfilegum hámarksstyrkleika í rafrettuvökva, þ.e. 20 mg/ml, samkvæmt gildandi lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir þær. Vísbendingar eru um að dregið hafi úr notkun rafrettna með tilkomu nikótínpúða og að sama skapi hefur sala á munntóbaki hjá ÁTVR dregist saman, sem virðist benda til þess að notkun á þessu sviði sé að breytast.
Mikilvægt er að sporna við því að börn og ungmenni hefji notkun og ánetjist nikótínvörum þar sem dæmi eru um að börn hafi orðið fyrir eitrunaráhrifum eftir að hafa neytt nikótínvara, eins og áður hefur verið nefnt. Einnig hefur nýleg rannsókn sýnt að einn af hverjum tíu nemendum í 10. bekk grunnskóla notar nikótínpúða. Því er lagt til samkvæmt frumvarpi þessu að óheimilt verði að selja nikótínvörur í skólum og á öðrum stöðum sem ætlaðir eru til félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna og á heilbrigðisstofnunum og öðrum stöðum þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt. Einnig að óheimilt verði að auglýsa nikótínvörur eða sýna neyslu þeirra í auglýsingum. Bann laganna við sýnileika varanna á sölustöðum mun einnig ná til nikótínvara, sem þýðir að slíkar vörur mega ekki vera sýnilegar viðskiptavinum á sölustöðum nema um sé að ræða sérvöruverslun. Notkun nikótínvara verður einnig gerð óheimil á tilteknum stöðum þar sem börn og ungmenni safnast saman, svo sem í skólum og öðrum menntastofnunum, sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna. Þannig er með frumvarpi þessu m.a. ætlunin að draga úr nýliðun ungra notenda á þessum vörum.
Frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust umsagnir frá opinberum stofnunum, einstaklingum, framleiðendum, seljendum og hagsmunasamtökum. Var að miklu leyti tekið tillit til athugasemda sem bárust í gegnum samráðsgátt og er greint frá því í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins í greinargerð.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginefni þessa frumvarps og leyfi mér að leggja til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. velferðarnefndar.