rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna þar sem hún mælir fyrir þessu máli, gerði það snöggt og vel eins og við mátti búast, á þessum tíma dags er stundum farið hratt yfir málin. Ég náði því miður ekki alveg að lesa þetta til enda og þess vegna kem ég hér til að spyrja hæstv. ráðherra: Er í þessu frumvarpi eitthvað fjallað um innihaldsefni í þessum vörum? Þá á ég við rafretturnar og mögulega níkótínpúðana sem ég þekki miklu minna til. Það sem ég velti fyrir mér er hvort það sé eitthvert eftirlit. Verður eitthvert eftirlit eða einhverjar reglur t.d. hvað varðar bragð? Menn eru að reykja þessar rafrettur og það er ilmandi jarðarberjalykt í kringum viðkomandi. Ég er bara að spyrja hvort það sé eitthvað í þessu frumvarpi fjallað um slíkt því að auðvitað getur lykt um leið og bragð haft einhvern hvata fyrir börn og ungmenni til að prófa hlutina eða sækjast í það ef þetta ilmar vel, það má orða það þannig. Einnig langar mig að spyrja hvort gert sé ráð fyrir að eitthvert batterí hafi eftirlit með þessum innihaldsefnum. Og þá um leið: Er ástæða til að óttast að í þessum vökvum sem eru notaðir í rafrettur eða í níkótínpúðana séu menn að setja ávanabindandi efni? Er það eitthvað sem hæstv. ráðherra hefur séð eða hefur rekið á fjörur hennar við gerð þessa frumvarps, eru áhyggjur af einhverju slíku? Nú þekki ég þetta hreinlega ekki en það er vitanlega, eins og gengur, verið að fullyrða um ýmsa hluti við mann. Þess vegna spyr ég ráðherra hvort eitthvað sé tekið á því varðandi lykt og bragð af þeim efnum sem þarna eru notuð, hvort og hver fylgist með þessum innihaldsefnum og hvort hún þekki það hvort verið sé að setja einhver ávanabindandi efni í þetta.