151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

713. mál
[19:28]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi bragðefni þá er heimild í lögunum í dag til að takmarka markaðssetningu bragðefna í rafrettum. Það mun þá vera sama heimild fyrir nikótínvörur með samþykkt frumvarpsins. Það er hugsunin. Starfshópur sem ég hef skipað hefur unnið að því að greina að hvaða leyti ætti að takmarka bragðefni í áfyllingum fyrir rafrettur með reglugerð og með þessu frumvarpi er sem sagt gert ráð fyrir að sams konar heimild sé fyrir hendi til að takmarka bragðefni fyrir þá vöru sem hér er til umræðu. Það er áætlað að sá starfshópur ljúki sinni umfjöllun á þessu ári.