151. löggjafarþing — 76. fundur,  12. apr. 2021.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

713. mál
[19:31]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Af því að það er orðið svona framorðið þá var einhver sem skaut því að mér að það væri eðlilegt að Mannvirkjastofnun gerði þetta því að rafrettur væru nokkurs konar mannvirki en það er náttúrlega eintómt alvöruleysi sem felst í slíku svari. Við setningu þeirra laga var Neytendastofu falið eftirlit með lögunum. Stofnunin var þá það stjórnvald sem fór með markaðseftirlit samkvæmt lögum um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, en með lögum nr. 18/2001, sem voru samþykkt fyrr á þessu ári, voru verkefni Neytendastofu sem sneru að markaðseftirliti færð til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Annar möguleiki sem er ekki lagður til í þessu frumvarpi, af því að hv. þingmaður nefnir hér aðeins hvort til að mynda heilbrigðisnefndir gæti verið einhver nálgun, væri sá, að höfðu samráði við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, að fela heilbrigðisnefndum, sem eru náttúrlega á vegum á vettvangi sveitarfélaganna, eftirlit með þessum vörum, þ.e. nikótínvörum og rafrettum. Þessar nefndir hafa í dag eftirlit með tóbaksvörum og markaðssetningu þeirra samkvæmt tóbaksvarnalögum. Það myndi þó væntanlega fela í sér ákveðna heildarendurskoðun á þessu sviði og það þyrfti að gera það eftir víðtækt samráð innan hlutaðeigandi ráðuneyta og viðeigandi eftirlitsaðila o.s.frv. En það er ekki fráleitt að láta sér detta þetta í hug í ljósi þess hvaða hlutverk það eru sem eru hjá heilbrigðisnefndunum núna. Jafnframt má nefna að með frumvarpinu er lagt til að eftirlit með auglýsingabanni rafrettulaganna verði hjá Neytendastofu og fjölmiðlanefnd.