störf þingsins.
Virðulegur forseti. Bæði úr hinni svokölluðu vinstri átt og hinni svokölluðu hægri átt, og eflaust líka úr hinni svokölluðu miðátt, ef hún er þá til, kemur fram í almennri orðræðu mikið vantraust til yfirvalda og fer vaxandi, eftir minni skynjun í það minnsta. Ég hygg að þetta vantraust geti á einhverjum tímapunkti sprungið í andlitið á okkur, þótt núna kraumi það undir og hafi ekki mjög hátt, vegna þess að ef fólk missir trúna á lýðræðinu þá er ekkert eftir nema ofbeldi og við viljum ekki sjá það, vænti ég fastlega.
Hluti af ástæðunni, að ég hygg, fyrir þessu aukna vantrausti er að löggjafinn og framkvæmdarvaldið sýna kjósendum ekki það traust sem þeir telja sig eiga skilið til þess að taka þátt í ákvarðanatökunni sjálfri hverju sinni. Ef við hefðum t.d. í stjórnarskrá ákvæði um að 10% kjósenda gætu knúið fram bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem Alþingi hefur samþykkt þá væri einfaldlega ekkert hægt að segja að Alþingi setti lög alfarið eftir eigin geðþótta og við værum öll einhver elíta sem myndi bara gera það sem henni sýndist sama hvað tautaði og raulaði milli kosninga. Það væri ekki hægt, virðulegi forseti. Það væri gott ef ekki væri hægt að segja það vegna þess að það myndi draga úr þessari tortryggni sem við búum við og ég óttast að muni aukast á næstu misserum, sér í lagi ef yfir okkur dynur enn eitt áfallið sem mögulegt er að kenna stjórnmálamönnum um, með réttu eða röngu. Það er því mikilvægt að við setjum í stjórnarskrá ákvæði sem hleypir kjósendum beint að ákvarðanatökunni sem hér fer fram. Það snýst ekki bara um að slíkt sé mögulegt í einhverjum algjörum undantekningartilfellum heldur til þess að kjósandinn upplifi það á eigin skinni að hann sé við stjórn.