151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:23]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson minntist hér áðan á verkefni sem er eitt af þeim fjölmörgum verkefnum sem stjórnvöld hafa gripið til til að reyna að milda höggið sem við höfum orðið fyrir vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins og virðist lofa góðu miðað við þær upplýsingar sem fram hafa komið, að þetta verkefni sé til þess fallið að veita fjöldamörgum atvinnutækifæri sem ekki hefðu fengið það ella.

Fréttir af hinum efnahagslegu áhrifum kórónuveirufaraldursins hafa verið svolítið misvísandi. Að sumu leyti má segja að niðurstöðurnar eins og þær birtast okkur í dag, miðað við mælingar á hagstærðum, gefi til kynna að hin neikvæðu áhrif séu minni en við óttuðumst á síðasta ári, að höggið sem efnahagslífið hefur orðið fyrir sé ekki jafn mikið og við óttuðumst. En það er engu að síður umtalsvert og það er rétt sem bent hefur verið á í opinberri umræðu, að höggið kemur mjög misjafnlega niður á atvinnugreinum, svæðum og einstaklingum, þannig að ákveðnir hópar hafa orðið fyrir mjög þungu höggi út af þessu meðan aðrir finna ekkert fyrir því, alla vega ekki að sinni. Kaupmáttur þorra fólks hefur vaxið þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu, en hins vegar hafa þeir sem misst hafa störf eða atvinnurekstur vegna áhrifanna fundið verulega fyrir þessu. Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur að grípa til tímabundinna ráðstafana, eins og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson nefndi. En það mikilvægasta er hins vegar að efnahagslífið nái sér sem fyrst af stað aftur með kröftugum hætti og það gerist ekki með opinberum aðgerðum heldur með því að hið opinbera skapi atvinnulífinu skilyrði til að vaxa og dafna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)