störf þingsins.
Virðulegur forseti. Á Suðurnesjum er sögulegt atvinnuleysi. Ég tel það skyldu mína, bæði fyrr og nú, að benda á tækifæri sem felast í störfum við uppbyggingu á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, Helguvíkurhöfn og í skógrækt og nú síðast við að skapa störf við eftirlit með fólki á gosstöðvunum í Geldingadal. Sumir vilja kalla það landvörslu og er gott. Þeir þingmenn sem sífellt tala um atvinnuleysisbætur, voru á móti stuðningi við lífæð til Icelandair sem höfðu þúsundir Suðurnesjamanna í vinnu, tala niður ferðaþjónustuna og hafa engar tillögur komið með um að styrkja atvinnulífið og skapa störf á Suðurnesjum, eru á rangri leið.
Í grein sem ég skrifaði lagði ég til að skapa störf við að aðstoða fólk á gosstöðvunum í Geldingadal og ætla að vitna í hana, með leyfi, virðulegur forseti, en hún fjallar um að skapa störf:
„Á Suðurnesjum er mesta atvinnuleysi á landinu og mikið af þaulreyndu fólki sem sinnt hefur eftirlits- og skoðunarstörfum á Keflavíkurflugvelli. Unnið við að leiðbeina fólki við komuna til landsins og er því þjálfað í að sinna og leiðbeina fólki. Flest af því talar fleira en eitt tungumál. Af hverju ekki að nýta krafta þessa fólks til eftirlits og aðstoðar ferðafólki á gosstöðvunum í Geldingadal? Skipulag og stjórnun eftirlitsstarfsins getur að sönnu verið hjá lögreglu og viðbragðsaðilum en störfin sem þarf að sinna og krefjast viðveru gætu komið frá fólki sem hefur beðið eftir því að losna af atvinnuleysisskrá.
Með því að nýta þau úrræði sem Vinnumálastofnun hefur yfir að ráða og ríkisstjórnin hefur samþykkt og fjármagnað má skapa tugi, ef ekki hundruð, starfa á nýjum vettvangi. Verkefnið er frekast í höndum Grindvíkinga en í ljósi aðstæðna er eðlilegt að SSS, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum standi á bak við verkefnið til að koma því af stað. Hvert nýtt starf fær greitt um 450 þús. kr. á mánuði að viðbættu orlofi eða tæpar 500 þús. kr. frá Vinnumálastofnun. Þá má hugsa sér að einhvers konar gjaldskylda stæði undir kostnaði sem fellur til vegna verkefnisins. Ekkert er því til fyrirstöðu að það verði einkaaðilar sem sjái um þetta verkefni með stuðningi sveitarfélaga og ríkis þar til önnur fjármögnun verður ákveðin.“ — Og verkefnið verði sjálfbært.
Með því að skapa tugi starfa við gæslu og eftirlitsstörf í Geldingadal er ráðist að atvinnuleysinu þar sem það er erfiðast og þyngst, með nýjum atvinnutækifærum í stað bóta.