störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í síðustu viku naut ég þess heiðurs að vera boðið á fund hjá Landssambandi eldri borgara, eins og ég hygg að margir þingmenn hafi fengið boð um. Landssambandið hittir nú um þessar mundir fulltrúa frá öllum stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á Alþingi. Það hefur dreift til okkar áhersluatriðum Landssambands eldri borgara og eru fimm punktar á þessum ágæta einblöðungi. Nr. 1 að eldra fólk fái að vinna eins og það vill; nr. 2 að starfslok miðist við færni en ekki aldur; nr. 3 að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustu; nr. 4 að millistig verði milli heimilis og hjúkrunarheimilis og nr. 5 er ein lög í stað margra lagabálka.
Það er að sjálfsögðu hægt að taka undir öll þessi áhersluatriði, þótt ég efist ekki um að stjórnmálaöflin kunni að hafa mismunandi sýn á það hvernig nálgast eigi þessi markmið. En mig langaði að ræða hér sérstaklega fjórða punktinn, þar sem talað er um millistig milli heimilis og hjúkrunarheimilis. Við sjáum núna fréttir um bágar aðstæður hjá þeim sem reka hjúkrunarheimili og þær eru ekki nýjar af nálinni. Við höfum séð sveitarfélög berjast við að halda uppi rekstri hjúkrunarheimila þar sem sveitarfélögunum hefur einhverra hluta vegna verið blandað inn í þennan rekstur, stundum að þeirra ósk en stundum ekki, og ég verð nú að viðurkenna að ég mun seint skilja það. En það sem verið er að tala um er meiri víðsýni í þeim efnum. Það er ekki þannig að það henti öllum að fara á hjúkrunarheimili, en það er heldur ekki þannig að það henti þá öllum hinum að búa heima með þjónustu.
Virðulegur forseti. Ég hygg að við þurfum að fara að horfa heildstæðar á þennan málaflokk með fjölda úrræða því að einstaklingarnir eru að sjálfsögðu misjafnir og þarfir þeirra eru misjafnar. Við verðum að finna leiðir til að koma til móts við einstaklinginn út frá þörfum hans. Þar af leiðandi þurfum við að fara að horfa heildstætt á þessa þjónustu og þá koma auðvitað upp þessar spurningar: Eiga sveitarfélögin að taka yfir málefni aldraðra eins og gert var í málefnum fatlaðra á sínum tíma, eða á það að vera á herðum ríkisins? Þetta sambland eins og verið hefur með félagslega þjónustu hjá sveitarfélögunum en heilbrigðisþjónustuna hjá ríkinu er hreinlega ekki góð leið til að þjónusta þennan mikilvæga aldurshóp.