störf þingsins.
Hæstv. forseti. Umræða um sóttkví og sóttvarnahús hefur að mínu viti dregið fram hversu mikilvægt það er, með meðalhóf að leiðarljósi, að gleyma ekki meginmarkmiðum sem stýra för með sóttvarnaaðgerðunum; að verja líf og heilsu fólks heillar þjóðar. Við deilum heldur ekki um mikilvægi þess að veita efnahagslífinu og hagkerfinu, heimilum og fyrirtækjum stuðning með kerfisbundnum og sértækum mótvægisaðgerðum til að draga úr óhjákvæmilegum efnahagslegum afleiðingum faraldursins. Samstaðan um þetta hefur skilað miklu og er örugglega ástæða þess að betur hefur gengið í þessari baráttu en ella. Þolinmæðin verður dyggð við þessar aðstæður og efi í rökræðum má aldrei verða til þess að ala af sér vantrú. Við þurfum aukakraft og þolgæði í gegnum næstu vikur og mánuði til að halda út. Það mun reyna á samstöðuna. Verum raunsæ, treystum á þekkinguna sem við höfum byggt upp á liðnu ári, sýnum þolgæði og höldum þetta út. Í dag má fagna því að snör viðbrögð síðustu þrjár vikur hafa skilað árangri sem við sjáum nú í afléttingum og örugglega á styttri tíma en ef ekkert hefði verið að gert. Það er afar dýrmætt að koma íþrótta- og tómstundastarfi, sundi og líkamsrækt af stað aftur og æfingum og keppni afreksfólks en ekki síður barna- og unglingastarfi. Það er risastórt lýðheilsumál og á að vera keppikefli að halda slíku starfi opnu eins og kostur er og aðstæður bjóða.
Áframhaldandi samstaða og þolgæði mun byggja á skýrri sýn á meginmarkmiðin. Sóttvarnir verða áfram í fyrirrúmi í þessari baráttu meðfram bólusetningum. Árvekni og úthald þarf að styðja með samræmdri upplýsingagjöf með áframhaldandi aðgerðum, forsendubundinni afléttingaráætlun í takti við framvindu bólusetninga og það þarf, virðulegur forseti, að tryggja áfram efnahagslegan stuðning við heimili og fyrirtæki.