151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[13:37]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að vera hér með okkur í dag og eiga við mig þessa umræðu. Mér fannst við hæfi að óska eftir henni og þá með tilliti til þess að fyrsta sérstakra umræðan mín á Alþingi Íslendinga eftir að ég var kjörin hér sem fulltrúi var einmitt við hæstv. fjármálaráðherra þann 28. desember 2017.

Mig langar til að velta því upp hvað hefur áunnist varðandi fátæktina á þessum tíma. Hvernig hafa stjórnvöld brugðist við á þessu tímabili þar sem við vorum jú að glíma við mjög mikla fátækt þegar við komum hér saman á kjörtímabilinu í desember 2017?

Mig langar til að byrja á því að nefna hvað komið hefur fram. Talað hefur verið um hvað við skorum vel hjá OECD, að meðaltalið sé mjög gott hér. Að við höfum það betra en flestallar aðrar þjóðir og allt hvað eina. Og það ber að þakka, ég ætla ekki að gera lítið úr því. Það sem sú kona sem hér stendur hefur aðallega verið að tala um og verið málsvari fyrir eru þeir einstaklingar sem ekki ná endum saman og búa raunverulega við fátækt á Íslandi í dag. Við sjáum ekki einungis — það er ekki einu sinni hægt að segja einungis þegar við erum að tala um þennan andstyggðarheimsfaraldur sem hefur jafnvel orsakað stigmagnandi fátækt í landinu. Við erum ekki einungis að horfa til þess heldur var þessi fátækt brennandi mikil og allt of umfangsmikil fyrir Covid. En í Covid höfum við séð biðraðir lengjast gífurlega við hjálparstofnanir þar sem einstaklingar eru að biðja um mat.

Við vitum líka að það er ekki til endalaust fjármagn í ríkissjóði til að hjálpa öllum um allt hvað eina og gera allt fyrir alla. En það er samt sem áður hægt að mínu mati að forgangsraða fjármunum þannig að við munum alltaf setja fólkið í fyrsta sæti. Það er sárara en tárum taki að vita til þess að bara núna í mars þáðu um 2.500 fjölskyldur mataraðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Það er með hreinum ólíkindum að við skulum á sama tíma, eins og ég veit að hæstv. fjármálaráðherra mun væntanlega segja, ég ætla ekki að svara fyrir hann, talandi um lækkun skatta, talandi um hækkandi barnabætur, talandi um átak um 7.000 ný störf og annað slíkt. En það eru ekki allir sem geta unnið. Sumir eru bara að framfleyta sér á berstrípuðum almannatryggingabótum og þá hefur líka stundum komið fram, einmitt hjá hæstv. fjármálaráðherra, sem mun væntanlega segja okkur það aftur núna, ef ég þekki hann rétt — maður er ýmislegt búinn að læra á heilu kjörtímabili á Alþingi Íslendinga — að það séu svo fáir sem séu á berstrípuðum almannatryggingabótum. Fyrst það eru svona fáir langar mig til að fá að vita: Af hverju hjálpum við þeim ekki? Af hverju tökum við ekki utan um fátækt fólk og skömmumst okkar fyrir að vera búin að reisa slíka rammgerða fátæktargildru um þúsundir einstaklinga? Þeir eiga ekki möguleika á því að ná endum saman. Það er í okkar valdi að hjálpa þessum einstaklingum. Nú horfum við á vaxandi atvinnuleysi í Covid. Hagkerfið var jú farið að kulna fyrir Covid og við vissum það í desember 2019 og við vorum þá þegar farin að glíma við tæplega 5% atvinnuleysi.

Við höfum gengið í gegnum fall flugfélags, ég veit það. Við gengum í gegnum loðnubrest, við erum að ganga í gegnum alls konar, en einnig hefur komið fram að ríkissjóður stóð mjög sterkur og í rauninni stóðum við það vel að við höfum getað tekist á við þennan heimsfaraldur og fáar þjóðir hafa getað státað af öðrum eins grunni að byggja á eins og við gerðum þá, eins og við höfum gert. En fá allir að njóta þess? Erum við í rauninni að taka utan um allt samfélagið eða er það sama gamla sagan, að það er meira sérhagsmunagæsla? Það er ekki nóg að bjarga fyrirtækjum. Það er ekki nóg að segja: Við tökum hundruð milljarða ágjöf á okkur, ríkissjóður, til að bjarga fyrirtækjum af því að allt samfélagið byggist á þeim. En það eru líka einstaklingar í samfélaginu sem ekki geta unnið og þeir verða að reiða sig á okkur.

Þess vegna langar mig að eiga þessa umræðu og ég vonast til þess að núna þegar hillir undir lok þessa kjörtímabils, verði það ekki bara einhver ný loforð fyrir næstu kosningar heldur kannski sýnilegar einhverjar pínulitlar lausnir um að við ætlum núna að taka utan um þennan þjóðfélagshóp sem Flokkur fólksins er málsvari fyrir hér á þingi. Og veitir ekki af.