151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[13:42]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka kærlega fyrir þessa umræðu, þakka hv. þingmanni fyrir að efna til hennar í þinginu og tel að málefnið sé mikilvægt á þessum tímum eins og alltaf. Við getum sagt að lífskjör Íslendinga og málefni þeirra sem standa höllum fæti séu aldrei of oft rædd hér í þinginu. Það sem ég hef viljað gera í þeirri umræðu er að beina sjónum að aðgerðum sem geta skipt máli. Hvað er það sem við getum gert sérstaklega? Ég verð að segja alveg eins og er að ég sakna þess í framsögu hv. þingmanns sem hér hefur umræðuna, hv. þm. Ingu Sæland, að ekki sé bent á fleiri atriði sem geta skipt máli. Jú, nefnt er að við gætum hækkað bætur almannatrygginga til þeirra sem hafa minnst, en við byggjum kerfi almannatrygginga þannig upp að við erum sérstaklega að teygja okkur til þeirra með því að láta hærra hlutfall bóta, þ.e. hæstu bæturnar óskertar, ganga til þeirra sem hafa ekkert. Svo koma þessar frægu skerðingar til sögunnar eftir því sem fólk hefur úr einhverju öðru að moða, hvort sem það eru atvinnutekjur, lífeyristekjur fjármagnstekjur eða hvað það er.

En til þess að leggja eitthvað af mörkum inn í þessa umræðu langar mig til að nefna hér nokkur atriði sem við höfum verið að gera og þar kemur margt til. Auðvitað þarf að vera samkomulag um það nákvæmlega hvaða hóp við erum að tala um sérstaklega, hvort við erum að tala um þá sem eru í allra verstu stöðunni af þeim sem myndu geta talist fátækir, með of lítið á milli handanna, eða hvort við erum að horfa aðeins yfir stærra svið. En engu að síður myndi ég leyfi mér að benda á að með breytingum á tekjuskatti einstaklinga síðustu tvenn áramót hafa ráðstöfunartekjur þeirra tekjulægstu hækkað um rúmlega 120.000 kr. á ári. Bara tekjuskattslækkunin skilar 120.000 kr. til þeirra tekjulægstu á ári vegna þess að það reiknast m.a. af bótum og þar með talið atvinnuleysisbótum. Við höfum líka verið að hækka skerðingarmörk barnabóta, svo dæmi sé tekið, og þannig hafa barnabætur sambúðarfólks hækkað um allt að 80.000 kr. á ári. Breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyri í ársbyrjun urðu til þess að auka tekjurnar um 8.000 kr. á mánuði fyrir þá allra tekjulægstu umfram þessi 3,6% sem allir fengu í bótakerfinu, þannig að bætur almannatrygginga til þeirra tekjulægstu hækkuðu með þessu tvennu um 19.700 kr. á mánuði um síðustu áramót. Ég veit þetta eru ekki háar tölur þegar maður horfir á einstaka liði en þetta leggst saman og fer að skipta verulegu máli, ekki bara í mánuðinum heldur á ársgrundvelli.

Þetta eru skref sem við kostum miklu til til að tryggja að þau nái framgangi. Ég hef ekki komið inn á ýmislegt annað, eins og húsnæðisbætur, stofnframlög og hlutdeildarlán á húsnæðismarkaði, sérstök úrræði sem horfa sérstaklega til ástandsins á húsnæðismarkaðnum. Við höfum frá árinu 2016 sett 15,5 milljarða í stofnframlög og gerum ráð fyrir 7,2 milljörðum til viðbótar í ár og á næsta ári. Þegar við horfum á þetta og virkni þess sem við köllum hér oft á tæknilegu máli sjálfvirka sveiflujafnara, þ.e. í þessu tilviki bótakerfin okkar, ef við skoðum virkni bótakerfanna okkar sjáum við að ef við förum í efnahagslægð, eins og við erum í einmitt í augnablikinu, þá standa kerfin með fólki. Við höfum verið í umfangsmestu efnahagsaðgerðum sögunnar. Við höfum varið hundruðum milljarða (Gripið fram í.) þegar allt er saman tekið í þeim tilgangi, hundruðum milljarða, og erum með 300 milljarða halla á þessu ári, svo dæmi sé tekið, og þar eru sjálfvirku sveiflujafnararnir verulega sterkir. (Gripið fram í: Ekki rétt.) Þetta fer eitthvað í taugarnar á sumum hér í þingsal en þetta er nú bara staðreynd. Við skulum skoða hver útkoman er. Þetta hefur þýtt að við höfum séð meiri jöfnuð eiga sér stað þrátt fyrir þessa kreppu. Þessi kerfi okkar verja stöðu þeirra sem eru með minnst á milli handanna, hlutfallslega langt umfram aðra, sem er gríðarlega mikilvægt og við hljótum að vera sammála um það. Ég gæti talið því til viðbótar ýmis sértæk úrræði eins og að örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar (Forseti hringir.) fengu 70.000 kr. eingreiðslu í fyrra til viðbótar við orlofs- og desemberuppbót o.s.frv. (Forseti hringir.) Þetta eru sértæku aðgerðirnar sem við höfum verið að beita okkur fyrir á undanförnum árum. Þær skila árangri og við sjáum bæði jöfnuð í samfélaginu vaxa, eins og hv. þingmaður vakti máls á, (Forseti hringir.) og kaupmátt lægstu tekjutíundarinnar stórbatna ár frá ári.

(Forseti (GBr): Forseti minnir hæstv. ráðherra jafnt sem hv. þingmenn á að virða tímamörk.)