151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[13:48]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu og sömuleiðis hæstv. ráðherra. Ég vil byrja á því að vitna til vefsíðu Vinnumálastofnunar þar sem segir að afgreiðsla umsókna um atvinnuleysisbætur geti tekið um sex vikur. Nú heyrist af sífellt fleiri einstaklingum sem ekki fá greiddar út atvinnuleysisbætur fyrr en nokkrum mánuðum eftir að hafa sótt um þær og hafa í engin hús að venda um mánaðamót, eru jafnvel búnir með allan yfirdrátt, sjá ekki fram á að geta greitt reikninga og eru þar af leiðandi komnir í fátæktargildru. Þó svo að staðan á Íslandi sé að mörgu leyti talin nokkuð góð hvað varðar fátækt mátti sjá í skýrslu Barnaheilla, sem kom út fyrir nokkrum árum, að fátækt og ójöfnuður barna á Íslandi jókst frá hruni. Þannig hafi mörg börn búið við óviðunandi aðstæður hvað varðar húsnæði og er húsnæðiskostnaður mjög hár hlutfallslega af tekjum þeirra sem minnst hafa. Tekjur heimila, bæði hvað varðar laun og félagslegar bætur, eru helsti áhrifaþáttur barnafátæktar. Ójöfnuður er ekki einungis einn orsakavaldur fátæktar heldur einnig afleiðing. Börn sem alast upp við fátækt eru líklegri til að búa áfram við fátækt sem fullorðnir einstaklingar og fátæktin flyst á milli kynslóða.

Ég vil velta því hér upp við hæstv. fjármálaráðherra hvort við séum að sjá aftur viðlíka þróun birtast okkur í kjölfar Covid-faraldursins og ég spyr hvernig hann hafi hugsað sér að bregðast við ef svo fer.