fátækt á Íslandi.
Virðulegi forseti. Jöfn tækifæri, jöfnuður og jafnrétti — við viljum að allir hafi jöfn tækifæri til atvinnu, til náms, til lífs, óháð kynþætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð eða búsetu. Við viljum áfram byggja upp þjóðfélag á grunngildum jafnræðis. Við viljum að hver og einn hafi sama rétt til menntunar, þroska, grundvallarlífskjara óháð uppruna, heilsu og efnahag. Covid-veiran hefur leitt til mikils atvinnuleysis hér á landi sem leiðir til þess að fleiri berjast í bökkum við að ná endum saman. Þeim vanda hefur ríkisstjórnin mætt með fjölbreyttum aðgerðum til að tryggja bæði frekari tækifæri til menntunar og atvinnu. Sem dæmi má nefna verkefni mennta- og menningarmálaráðherra Nám fyrir alla og verkefni félags- og barnamálaráðherra Hefjum störf. Þessar aðgerðir eru einmitt til þess fallnar að grípa það fólk sem hefur lent illa í Covid og veita því tækifæri. Það eru einmitt tækifæri sem eru grundvöllur jafnaðar og jafnréttis innan hvaða samfélags sem er. En það eru ekki allir sem geta gripið tækifærið.
Virðulegi forseti. Við þurfum að horfa upp á þá staðreynd að fátækt er raunverulegur vandi hér á landi þó að hann fari huldu höfði. Það skal vera markmið okkar að útrýma fátækt hér á landi. Það er gert með jöfnum tækifærum, jöfnuði og jafnrétti. Þetta er verkefni sem markvisst er unnið að en betur má ef duga skal. Eins og sagt var hér áður eru ýmsar aðgerðir til staðar í dag til að sporna við fátækt en við eigum öll að leggja hönd á plóg og gefa í.