fátækt á Íslandi.
Herra forseti. Matarkarfan er fastur kostnaður sem er hlutfallslega mun hærri fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyldur þeirra en aðra. Við búum hér á eyju og erum því háð innflutningi á stórum hluta af nauðsynjavörum okkar. Þannig er flutningskostnaðurinn óaðskiljanlegur hluti af matarkörfunni okkar en hann er langt frá því eini ráðandi þátturinn í því að matarkostnaður er hér hærri en annars staðar. Við treystum líka á sveiflukennda örmynt í öllum okkar viðskiptum. Hún dregur úr fyrirsjáanleika og stöðugleika í atvinnulífinu og ýtir undir háa vexti sem skilar sér í hærra verði á öllum okkar vörum og þjónustu, hærra verði sem leggst af meiri þunga á þá sem búa við skort eða fátækt. Vextir gera lánin okkar líka dýrari, bæði neyslulán þeirra sem þurfa að leita slíkra lausna í sárri neyð og húsnæðislánin. Síðarnefndu lánin byggja varnargarð í kringum fasteignamarkaðinn sem sumir ná aldrei að yfirstíga en þurfa samt að greiða kostnaðinn af því að kostnaður skilar sér að sjálfsögðu beint út í leiguverðið líka. Vextir eru reyndar óvenjulágir núna í sögulegu samhengi en þeir eru þrátt fyrir það margfaldir á við það sem nágrannalönd okkar búa við. Það er því og verður enn dýrara að búa á Íslandi en annars staðar og krónan á stóran þátt í því. Það myndi skila okkur öllum bættum lífskjörum að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Það er langtímamarkmið en til skamms tíma má leita lausna með því að festa t.d. gengi krónunnar við evru líkt og Danir hafa gert. Það myndi skila okkur öllum bættum lífskjörum en það myndi hafa hlutfallslega mest jákvæð áhrif á tekjulægstu íbúa landsins.