151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[14:01]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér ræðum við um málefnið fátækt. Fátækt kemur fram í mörgum orðum á íslensku: Snauður, félítill, fátæklingur, kotungur, félaus, efnalítill, févana, smælingi, vesæld, örbirgð, volæði, bjargarleysi, eymd, vesaldómur, allsleysi, vanefni, kotungabúskapur og hreppaflutningar. Fátækt eða örbirgð er efnahagslegt ástand þeirra sem líða skort, þeirra sem skortir mat, húsnæði eða aðrar nauðsynjar, heilbrigðisþjónustu, föt og jafnvel menntun. Hvað þýðir þetta á mannamáli? Það þýðir að við erum að setja stóran hóp, jafnvel 10% þjóðarinnar, inn í þennan skala og 5% af þeim jafnvel í sárafátækt. Og við erum með börn í þessum aðstæðum, börn í þúsundatali, jafnvel á milli 6.000 og 10.000 börn í þeim ömurlegu aðstæðum að þurfa að lifa í fátækt. Það er okkur til háborinnar skammar. Ég segi: Guð hjálpi okkur, ekki myndi það batna ef við færum í ESB vegna þess að það þekki ég af eigin raun að það yrði enn skelfilegra. Við þurfum ekki að fara þangað til að ná jöfnuði, við þurfum bara að skipta auðnum rétt. Láta auðinn fara fyrst og fremst til þeirra sem þurfa á því að halda. Við erum búin að snúa þessu við þannig að 1% þjóðarinnar hirðir allt og veit ekki aura sinna tal á meðan börn svelta. Það er okkur til háborinnar skammar.