fátækt á Íslandi.
Herra forseti. Í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var ákveðið að setja á fót Velferðarvaktina sem hefur verið hryggjarstykkið í rannsóknum á fátækt á Íslandi og í tillögum um hvernig hægt sé að uppræta hana. Í nýjustu skýrslu sem unnin var fyrir Velferðarvaktina um þróun lífskjara og fátæktar barna á árunum 2004–2006 kemur fram að þrátt fyrir að lífskjör barna séu heilt á litið góð á Íslandi í samanburði við flest önnur Evrópulönd eru nærri fjögur af hverjum tíu börnum á Íslandi undir lágtekjumörkum og það sem meira er, börn einstæðra foreldra og allur þorri einstæðra foreldra er í neðri helmingi tekjudreifingarinnar. Langfjölmennasti hópurinn sem fékk fjárhagsaðstoð í Reykjavík í maí 2020 á aldrinum 20–39 ára eru einstæðar mæður, ungar einstæðar mæður með börn á framfæri. Annar hópur foreldra sem líklegastur er til að búa við fjárhagsþrengingar er öryrkjar.
Herra forseti. Það er allra brýnast að leiðrétta kjör þessa hópa sem fyrst. Aðgerðir, ekki orð. Það þarf líka að bæta lífskjör barna sem eiga einstæða foreldra, bæta fjárhagslegar bjargir öryrkja, sem er sá hópur sem er líklegastur til að búa við fjárhagsþrengingar eins og áður segir, og það þarf að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði og húsnæðiskostnaðinn sem hefur gríðarlega mikil áhrif á lífskjör barna og áhrif á fátækt meðal barna öryrkja og einstæðra foreldra. Tekjulágt barnafólk sem á lítið eigið fé í húsnæði sínu fær nú lítinn sem engan stuðning í gegnum vaxtabótakerfið.
Svo er það kórónuveiran, herra forseti. Í desember síðastliðnum kom fram ákall um tillögur frá Velferðarvaktinni þar sem miklum áhyggjum var lýst af þeim sem stóðu höllustum fæti fyrir heimsfaraldur og lagðar til nokkrar tillögur. Og hvar eru þær, herra forseti? Hvar er stefnumótun og aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir fátækar efnalitlar barnafjölskyldur? Reykjavíkurborg hefur nú þegar hafið slíka vinnu. Hvar er endurskoðun á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga? Þar er m.a. lagt til að skilgreind sé grunnfjárhæð til framfærslu. Hvernig hefur gengið að stytta biðtíma fólks eftir afgreiðslu (Forseti hringir.) atvinnuleysisbóta, endurhæfingarlífeyris og örorkulífeyris? Og síðast en ekki síst: Hvernig hefur gengið að hækka (Forseti hringir.) hámarksgreiðslur barnabóta sem nýtast einstæðum foreldrum og tekjulægsta hópnum? (Forseti hringir.) Þetta eru nokkur atriði. Á meðan stendur hæstv. fjármálaráðherra hér (Forseti hringir.) og gumar sig af 10.000 kr. hækkun á mánuði til tekjulægsta hópsins í formi breytinga (Forseti hringir.) á tekjuskatti eða sjálfvirkum sveiflujöfnurum, sem er bara ekkert til að guma sig af í alþjóðlegum samanburði, ekki neitt.
(Forseti (WÞÞ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)