151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[14:13]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Við vitum öll hvaða áhrif fátækt hefur á fólk. Líf fátækra einkennist af miklu álagi, vanlíðan og niðurlægingu sem grefur undan andlegri og líkamlegri heilsu þeirra. Fátækt foreldra getur einnig haft langvarandi áhrif á börn, þroskaskeið barna á fyrstu árunum sem leggur grunninn að heilsu og þroska þeirra til framtíðar og því er gríðarlega mikilvægt að við tryggjum börnum bestu mögulega byrjun í lífinu. Við vitum líka öll að þúsundum barna á Íslandi er gert að lifa við fátækt. Áætlað er að 10% íslenskra barna búi á heimilum þar sem tekjur eru undir lágtekjumörkum. Einu af hverjum tíu börnum í okkar velmegunarsamfélagi er neitað um lífsskilyrði og tækifæri sem öðrum börnum bjóðast bara vegna fjárhagsstöðu foreldranna. Þetta vitum við öll. Eins og hagfræðingurinn Charles Kenny sagði þá er stóra ástæðan fyrir því að fátækt fólk er fátækt sú að það á ekki nægilega mikla peninga. Einfalt. Besta leiðin til að draga úr þessu vandamáli er því einfaldlega að gefa fátæku fólki meiri peninga. Það er gríðarlega kostnaðarsamt fyrir einstaklinga að losna úr vítahring fátæktar og það er gríðarlega kostnaðarsamt fyrir samfélagið til framtíðar að leyfa fátækt að viðgangast.

Hér hélt hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins ræðu áðan og þakkaði hinum ýmsu hjálparsamtökum fyrir að vera til staðar til að grípa fólk í neyð. Ég tek undir það. En skilaboðin mín hér eru að við eigum ekki að þurfa á þessum samtökum að halda, ekki á þennan hátt. Við eigum einfaldlega að tryggja efnahagslegt öryggi fólks með auknu beinu framlagi, með því að draga verulega úr skerðingum og skilyrðum í bótakerfinu og með því að hætta að kalla þetta bætur. Hættum að kalla þetta bætur. Þetta er arfur. Þetta er sjálfsagður hlutur okkar í sameiginlegri velmegun samfélagsins. Þetta er réttur okkar. Þetta er ekki bara mannúðlegt og skynsamlegt heldur eru það réttindi okkar að okkur sé tryggt efnahagslegt öryggi.