fátækt á Íslandi.
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni eru tækifærin grundvöllur jafnaðar og jafnréttis fyrir það fólk sem getur gripið þau. Það eru nefnilega ekki allir sem geta gripið atvinnu- og námstækifæri, t.d. af heilsufarslegum ástæðum. Það eru helst öryrkjar sem hafa ekki heilsu til að vinna og eldri borgarar í lægstu tíundinni sem eiga þess ekki kost. Einstaklingar sem ekki geta gripið tækifærin eru þeir einstaklingar sem við þurfum að grípa. Um 40.000 manns eldri en 67 ára eiga rétt á lífeyri frá Tryggingastofnun og þegar hópnum er skipt í tíundir út frá tekjum er staða þessa fólks æðimisjöfn. Í hverri tíund eru um 3.500 manns. Meðallaun hópsins í fyrstu tíundinni, eða lægsta þrepinu, eru 245.000 kr. og í næstu tíund og ofan við eru þær 295.000 kr. Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er: Engin fátækt.
Virðulegi forseti. Við skulum gera betur. Ég ætla að vitna hér, með leyfi forseta, í stuttan kafla úr fyrsta markmiði Sameinuðu þjóðanna:
„Nýjustu mælingar sýna að á Íslandi ríkir mestur tekjujöfnuður og minnst fátækt meðal Evrópuþjóða en þrátt fyrir þær jákvæðu niðurstöður býr ákveðinn hópur fólks enn við efnislegan skort og fátækt. Eitt af meginmarkmiðum heimsmarkmiðanna er að skilja engan eftir og því er mikilvægt að hafa það að leiðarljósi við innleiðingu fyrsta markmiðsins um að útrýma fátækt á Íslandi.“