151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[14:17]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að hefja þessa umræðu. Nú þegar atvinnuleysi er að aukast verulega, og við horfum á sögulega háar tölur í því sambandi, þurfum við að vera meðvituð um að því fylgja vandamál sem geta orðið langvinn. Fólk lendir í því að vera í vanskilum og getur jafnvel ekki séð börnum sínum fyrir grunngæðum. Atvinnuleysi sem nær að festa rætur verður þessum einstaklingum sem og samfélaginu öllu auðveldlega dýrkeypt og er til þess fallið að hafa áhrif á heilsu, líkamlega jafnt sem andlega, getur jafnvel leitt til örorku sem fólk festist í. Það eru einmitt hinir verst settu, fólk sem nú býr við skertar tekjur og glímir við fátækt, sem síst geta leitað sér aðstoðar að þessu leyti einfaldlega vegna kostnaðar. Rannsóknir sýna að einstæðir foreldrar og börn þeirra og einhleypt, barnlaust fólk, er í meiri hættu en aðrir á að lenda í sárafátækt. Þeir þættir sem mesta þýðingu hafa þar um, eða spá fyrir um hvort fólk búi við sárafátækt, er staða fólks á húsnæðismarkaði annars vegar og heilsufar hins vegar. Ég held því að við alla stefnumótun þurfi að taka mið af þessum þáttum, að stuðningur beinist með sértækum hætti að þeim sem búa við mestan skort. Þar finnst mér að stjórnvöld þurfi helst brýningu, að horfa til þeirra sem mest þurfa á aðstoðinni að halda.

Varðandi fátækt barna má segja að þeirra heimur sé heimilið og skólinn. Allur stuðningur við þessa tvo þætti hjálpar til og lagar aðstöðumun barna; skólamáltíðir, óbeinn kostnaður við skóla, frístundir og tómstundir o.s.frv. Lausnin verður þá að styðja með skýrum og réttlátum hætti við tekjulágar barnafjölskyldur. Ég nefndi í upphafi heilsufar á okkar tímum og vildi í því sambandi nefna sálfræðiþjónustu. Fáar aðgerðir held ég að séu líklegri til að hafa meiri áhrif um það að minnka nýgengi örorku vegna andlegra veikinda en aðgengi að heilbrigðisþjónustu, þar með talinni sálfræðiþjónustu. Þess vegna kalla ég eftir því núna að ríkisstjórnin (Forseti hringir.) taki vanda tekjulágra föstum tökum og fullfjármagni heimild Sjúkratrygginga til að semja við sjálfstætt starfandi sálfræðinga.