151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

fátækt á Íslandi.

[14:19]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka öllum hjartanlega fyrir að hafa tekið þátt í þessari umræðu sem er sannarlega aldrei of oft kveðin. Í upphafi beindi hæstv. fjármálaráðherra því til mín hvaða ráð ég sæi í stöðunni. Fyrir það fyrsta skal ég leysa hann af í tvo mánuði og ég myndi sannarlega stokka þetta kerfi heldur betur upp. Flokkur fólksins segir: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Við sjáum að það verður gríðarlegur ójöfnuður enn frekar núna í kjölfarið á Covid. Ekki nóg með það heldur vitum við um kjaragliðnun einmitt hjá almannatryggingaþegum upp á tæp 37% síðan eftir efnahagshrun sem ekki hefur verið leiðrétt og má betur gera ef duga skal hvað varðar að leiðrétta hana, á bilinu 40.000–70.000 kr. á mánuði, sem myndi gjörbreyta stöðu þessara einstaklinga.

Á móti myndi ég vilja spyrja hæstv. fjármálaráðherra, eins og ég hef ítrekað talað um hér: Hvers vegna í veröldinni höfum við ekki afnumið persónuafslátt til hátekjufólks, eins og mín og hæstv. fjármálaráðherra, og fært þetta fjármagn niður til þeirra sem hafa bágust kjör í samfélaginu og eru með framfærslu upp á 220.000–240.000 kr. í peningum eftir að það er búið að rífa af þeim skatt? Það er ekki nóg að tala um 300.000 kr. þegar á eftir að taka af því gjöld. Það er ekki nóg að segja: Hérna færðu 320.000 kr. en þegar þú færð þær útborgaðar færðu bara 240.000 og svo 200.000 kall í húsaleigu og farðu svo til hjálparstofnana og biddu um mat. Við erum að horfa upp á litlu börnin okkar missa af því að hafa fengið það í vöggugjöf að vera snillingar því að pabbi og mamma hafa ekki efni á því að fylgja því eftir og gefa þeim tækifæri í lífinu. Það er á okkar ábyrgð, virðulegi forseti, og hæstv. fjármálaráðherra að bæta þá stöðu. Og eitt er alveg víst: Þó að einhver hafi það verra einhvers staðar annars staðar þá bætir það ekki stöðu þeirra (Forseti hringir.) sem eru fátækir og fastir í fátæktargildru á okkar landi í dag. Ég segi bara: Verði þeim að góðu sem ætlar að reyna að telja fátæku fólki trú um það, (Forseti hringir.) þegar það á ekki fyrir salti í grautinn, að það sé ekki fátækt.