fátækt á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir ágæta umræðu í dag en mig langar til að snúa mér beint að efninu. Við erum að tala hérna um alvörumálefni og við verðum líka að tala af alvöru um gögn og staðreyndir sem við höfum í höndunum um það hvað er í raun að gerast á Íslandi í dag. Heilt yfir er fátækt á Íslandi lítil í alþjóðlegum samanburði. Okkur hefur tekist vel að bæta stöðu þess hóps sem við erum sérstaklega að tala um. Lágtekjuhóparnir á Íslandi hafa séð kjarabætur á undanförnum árum, það er engum blöðum um það að fletta. Við erum með minnstan ójöfnuð í Evrópu. Við erum með lægsta lágtekjuhlutfall sömuleiðis, lægsta. Þetta eru allt staðreyndir sem eru órækur vitnisburður um það að okkur á Íslandi, Alþingi, íslensku ríkisstjórninni, hefur tekist vel, betur en öðrum, að gera sem mest fyrir þá sem þurfa helst á því að halda.
Mig langar að koma aðeins inn á hugmyndafræðina sem mætir mér hér í þingsal. Píratar tala um að maður skilji ekki stöðu þessa fólks, þrátt fyrir allan árangurinn sem við höfum verið að sýna, þrátt fyrir að við höfum með skattalækkunum og styrkingu bótakerfanna og fjármögnun slíkra styrkinga sýnt fram á að við getum bætt stöðu þessara hópa. Ég beið bara eftir því að það kæmi ræða frá talsmanni Pírata í umræðunni um að það væri auðvitað framtíðarsýn þeirra, eins og við þekkjum úr sögunni, að hér gengju 40.000–50.000 manns um á borgaralaunum og gerðu ekki neitt og væru bara vel sett af því. Viðreisn kemur í raun og veru bara með eitt mál inn á borðið og það kemur svo sem ekkert á óvart, það er Evrópusambandið. Evrópusambandið myndi leysa þetta mál. Þó er það þannig í Evrópusambandinu að neyslan hrundi miklu meira en á Íslandi, neyslustigið á Íslandi, staða heimilanna, batnaði í fyrra. Staða heimilanna batnaði, ráðstöfunartekjur heimilanna bötnuðu í fyrra og kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aldrei verið hærri en í upphafi þessa árs. Þetta var ekki þannig í Evrópusambandinu sem er óræk sönnun þess að þar tókst ekki jafn vel og hér að fást við vandann. Vilji menn fara út í AGS-skýrsluna þá hef ég ýmislegt um hana að segja. Hún gefur engan veginn rétta mynd af stöðunni á Íslandi (Forseti hringir.) og undanskilur fjölda aðgerða sem þurfa að vera með ef menn ætla að gera einhvern svona alþjóðlegan samanburð.