kosningar til Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis. Með því er í fyrsta lagi lagt til að unnt verði að safna meðmælum með framboðum til kosninga til Alþingis rafrænt sem og meðmælum vegna úthlutunar listabókstafs. Jafnframt að unnt sé að rita rafrænt undir tilkynningu stjórnmálasamtaka til yfirkjörstjórna um framboð og að sá sem hyggst bjóða sig fram geti ritað rafrænt undir yfirlýsingu sína um framboð.
Í öðru lagi er í frumvarpinu lagt til að unnt verði að bregðast við því ástandi sem kann hugsanlega að ríkja vegna Covid-19 farsóttarinnar þegar kosningar fara fram að hausti þannig að þeim sem kunna að vera í sóttkví eða einangrun á kjördag verði gert kleift að kjósa.
Þá er í þriðja lagi kveðið á um nauðsynlegar lagfæringar á tilvísun til heitis sveitarfélaga í Norðausturkjördæmi vegna sameiningar sveitarfélaga þar.
Tilefni frumvarpsins má rekja til þess að við forsetakosningarnar síðastliðið sumar þótti sú framkvæmd sem verið hafði við lýði árum saman við söfnun meðmæla með framboðum, þ.e. að safna undirskriftum á pappír, ekki ásættanleg, m.a. í ljósi þess ástands sem ríkti í samfélaginu vegna Covid-19 farsóttarinnar. Var því, í samstarfi dómsmálaráðuneytisins og Þjóðskrár Íslands, skoðað hvort unnt væri að safna meðmælendum rafrænt. Var niðurstaðan sú að verkefnið væri vel framkvæmanlegt á þeim stutta tíma sem þá var til stefnu. Var lögum um framboð og kjör forseta Íslands breytt og heimild veitt þar til rafrænnar söfnunar meðmæla. Tókst framkvæmdin vel í alla staði og voru 87,5% meðmæla rafræn.
Í ljósi þeirrar óvissu sem enn ríkir vegna Covid-19 farsóttarinnar og þess hversu mikil ánægja var með að unnt væri að safna meðmælum rafrænt við forsetakosningarnar síðastliðið sumar þykir rétt að bjóða einnig upp á slíkt fyrirkomulag við komandi kosningar til Alþingis, bæði vegna söfnunar meðmæla með framboðslista sem og við úthlutun listabókstafs. Þá er jafnframt lagt til að unnt verði að rita rafrænt undir tilkynningu stjórnmálasamtaka til yfirkjörstjórna um framboð og að sá sem hyggst taka sæti á framboðslista geti ritað rafrænt undir yfirlýsingu sína um framboð.
Um flóknara verkefni er að ræða nú enda um að ræða framboðslista með mörgum frambjóðendum auk þess sem frumvarpið gerir ráð fyrir mun meiri rafrænni þjónustu en veitt var við forsetakosningarnar en þá laut þjónustan eingöngu að söfnun meðmæla með framboðum. Breytingin er einnig í samræmi við þá stafrænu þróun sem á sér stað víða í samfélaginu. Verkefnið hefur verið þróað og unnið í samvinnu við Verkefnastofu um stafrænt Ísland og Þjóðskrá Íslands. Breytingin felur í sér heimild til rafrænnar söfnunar meðmæla vegna framboða og úthlutunar listabókstafa, einnig að undirskrift geti verið rafræn í þeim tilvikum sem frambjóðandi lýsir yfir vilja sínum til að taka sæti á framboðslista og jafnframt þegar framboð er tilkynnt til yfirkjörstjórnar.
Þá er markmið frumvarpsins einnig að bregðast við því ástandi sem kann hugsanlega að ríkja vegna Covid-19 þegar kosningar fara fram á hausti komanda þannig að þeim sem kunna að vera í sóttkví eða einangrun á kjördag verði gert kleift að kjósa. Það ástand kom upp að morgni kjördags í forsetakosningunum síðastliðið sumar að fjöldi fólks sem ætlaði að greiða atkvæði á kjördag var kominn í sóttkví samkvæmt ákvörðun yfirvalda. Af sóttkvínni leiddi að þessum kjósendum var hvorki heimilt að sækja kjörfund á kjördegi né greiða atkvæði utan kjörfundar með hefðbundnum hætti. Eftir samráð dómsmálaráðuneytisins við yfirkjörstjórnir, embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og sóttvarnayfirvöld var ákveðið að gera þeim, sem svo væri ástatt um að vera í sóttkví vegna ráðstafana sóttvarnayfirvalda, kleift að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Var um að ræða kosningu utan kjörfundar sem fór fram fyrir utan kjörstað sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu og nutu kjósendur aðstoðar kjörstjóra við að greiða atkvæði. Var þannig gætt ákvæða kosningalaga um kosningu utan kjörfundar sem og skilyrða sóttvarna vegna þeirra sem voru í sóttkví samkvæmt ákvörðun yfirvalda.
Með breytingunni nú er lagt til að sýslumenn, hver í sínu umdæmi, í samráði við sóttvarnayfirvöld, skipuleggi atkvæðagreiðslu utan kjörfunda á sérstökum stað og með sérstökum hætti fyrir þá sem ekki geta greitt atkvæði á kjörstað á kjördag eða greitt atkvæði utan kjörfundar á almennum utankjörfundarstað sökum þess að þeir eru í sóttkví eða einangrun. Annars vegar er um að ræða að gera einstaklingi sem kann að vera í sóttkví á kjördag kleift að greiða atkvæði utan kjörfundar á sérstökum stað, hvort sem er á kjördag eða fyrir kjördag, en hins vegar er um það að ræða að kjósandi sem ekki getur sótt kjörfund á kjördag sökum þess að hann er í einangrun eða sóttkví og hefur ekki tök á að koma sér á sérstakan utankjörfundarstað geti óskað eftir því við sýslumann að fá að greiða atkvæði á dvalarstað sínum. Brýnt er að í þeim tilvikum sem kjörstjóri eða aðrir trúnaðarmenn þurfa að fara á dvalarstað kjósenda sé gætt að því að þeir hafi kunnáttu og hafi yfir að ráða búnaði sem tryggi sóttvarnir og öryggi viðkomandi. Kjósandi sem er í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19 telst hvorki fær um að árita kjörseðilinn á fyrirskipaðan hátt né að undirrita fylgibréfið og því skal kjörstjóri veita honum aðstoð til þess án þess að nokkur annar sjái.
Um er að ræða frumvarp sem er ætlað að stuðla að öflugri og öruggari rafrænni þjónustu við frambjóðendur til Alþingis, stjórnmálaflokka, yfirkjörstjórnir og þá sem vilja mæla bæði með framboðum til Alþingis og úthlutun listabókstafs. Þá gerir rafræn meðmælendaskrá vinnu yfirkjörstjórnar við yfirferð meðmælendalista bæði fljótvirkari og skilvirkari en í frumvarpinu er einnig brugðist við því ástandi sem kann hugsanlega að ríkja vegna Covid-19 þegar kosningar fara fram á hausti komandi þannig að þeim sem kunna að vera í sóttkví eða einangrun á kjördag verði gert kleift að kjósa. Gert er ráð fyrir nánari útfærslu, bæði á hinni rafrænu þjónustu og atkvæðagreiðslu þeirra sem eru í sóttkví og einangrun utan kjörfundar, í reglugerð.
Loks er í frumvarpinu kveðið á um nauðsynlegar lagfæringar á tilvísun til heitis sveitarfélaga í Norðausturkjördæmi vegna sameiningar sveitarfélaga. Sveitarfélögin Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Djúpavogshreppur hafa nú verið sameinuð í sveitarfélagið Múlaþing og því er lagt til að heiti þessara sveitarfélaga verði felld brott í upptalningu laganna á sveitarfélögum í Norðausturkjördæmi og í stað þeirra komi heiti hins nýja sveitarfélags, Múlaþings.
Eins og áður sagði var frumvarpið unnið af ráðuneytinu en samráð haft við Þjóðskrá Íslands, sýslumannsembætti landsins, Verkefnastofu um stafrænt Ísland, formenn yfirkjörstjórna, landlæknisembættið og heilbrigðisráðuneytið. Lagt er til að frumvarpið taki þegar gildi.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og 2. umr.