breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Efni málsins varðar greiðsludreifingu staðgreiðslu og tryggingagjalds og sömuleiðis úttekt séreignarsparnaðar.
Í frumvarpinu er lagt til að lögaðilar og einstaklingar í atvinnurekstri fái heimild til að dreifa greiðslum staðgreiðslu- og tryggingagjalds, sem frestað var á árinu 2020 samkvæmt lögum um breytingu á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum um tryggingagjald og lögum um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru og að menn fái að gera þetta að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Lagt er til að tekið verði á móti umsóknum um greiðsludreifingu á þjónustusíðu Skattsins og að framkvæmd úrræðisins og innheimta verði á höndum Skattsins. Frumvarpið gerir ráð fyrir að umsóknir og framkvæmd öll verði með rafrænum hætti.
Þá er einnig lagt til að heimild einstaklinga til að taka út séreignarsparnað taki gildi að nýju og verði í gildi út þetta ár. Lögð eru til sömu viðmið um umsóknartímabilið og úttektarfjárhæð og lögfest voru í fyrra, 2020, sem hluti af viðbrögðum stjórnvalda við faraldrinum, þannig hægt verði að taka út allt að 12 millj. kr. sem greiddar verði út á 15 mánaða tímabili. Talsvert hefur verið um að einstaklingar hafi óskað eftir því við stjórnvöld að þessi úttekt verði heimiluð áfram. Í ljósi þess að áhrifa faraldursins gætir mun lengur en talið var í fyrstu og að atvinnuleysi er enn mikið er talið rétt að leggja til að heimildin verði veitt tímabundið að nýju. Þannig verði þeim sem ekki hafa þegar nýtt hana gefinn kostur á að nýta úrræðið á sömu forsendum og áður giltu.
Virðulegi forseti. Dreifing greiðslubyrðar vegna frestunar á staðgreiðslu launagreiðenda mun hafa þau áhrif að fresta og dreifa útgjöldum launagreiðenda sem nýta úrræðið. Um aukinn frest á greiðslu staðgreiðslu- og tryggingagjalds vegna ársins 2020 sótti 831 aðili, en þar af voru 46 einstaklingar í atvinnurekstri og 785 lögaðilar. Samtals var greiðslum að fjárhæð 8,4 milljörðum kr. frestað. Viðbúið er að mikið hagsmunamál margra þeirra sem sóttu um frest á greiðslu staðgreiðslu og tryggingagjalds sé að dreifa greiðslubyrði enn frekar þar sem fyrirséð er að tekjuflæði muni enn um sinn verða skert vegna heimsfaraldursins.
Þá er talið að hagsmunum ríkissjóðs verði betur borgið með frekari greiðsludreifingu verði frumvarp þetta að lögum og muni tryggja betur greiðslur þeirra gjalda sem frestað var. Áætlað er að margir muni nýta sér úrræðið til frekari frestunar og að fjárhæðin í heild muni nema á bilinu 6,5–7,5 milljörðum kr.
Úttekt séreignarsparnaðar er tekjuskattsskyld og hefur því jákvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs þann tíma sem útgreiðslur falla til. Heildaráhrifin ráðast af því hve margir muni nýta heimildina og í hvað skattþrep tekjuskatts greiðslurnar falla. Á árinu 2020 nýttu alls 18.386 einstaklingar heimild til skattskyldrar úttektar á séreignarsparnaði og alls voru 28,5 milljarðar kr. greiddir út. Úrræðið hefur því verið talsvert nýtt og það hefur átt sinn þátt í að viðhalda kaupmætti heimilanna. Nokkuð ákall hefur verið um framlengingu þess og telja stjórnvöld sjálfsagt að verða við því enda keppikefli okkar allra að styðja við heimili og fyrirtæki á meðan áhrifa faraldursins gætir enn. Úttektin í fyrra nam um 3% af eignum séreignarsjóðanna og er ekki talið að þeir muni eiga í vandræðum með að fjármagna frekari útgreiðslur.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi er áfram haldið með öflugan stuðning stjórnvalda fyrir fólk og fyrirtæki vegna kórónuveirufaraldursins, en bæði úrræði hafa nýst vel til að milda efnahagsleg áhrif hans. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.