151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

698. mál
[15:58]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna og taka það fram að ég styð frumvarpið. Ég velti þó fyrir mér ýmsum þáttum í kringum þann lið sem varðar úttekt á séreignarsparnaði. Í fyrsta lagi eins og er vikið að í einni setningu í frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Þess ber þó að geta að þeir fjármunir sem heimilin nýta nú verða ekki tiltækir síðar og mun því draga úr ráðstöfunartekjum þessara heimila síðar að öðru óbreyttu.“

Hefur hæstv. fjármálaráðherra engar áhyggjur af því miðað við tilgang þessarar heimildar, þ.e. upphaflegu heimildarinnar til að leggja í séreignarsparnað, að hún útvatnist svolítið þegar menn og konur geta tekið út sína peninga fyrr en ella með þessum hætti? Er það í sjálfu sér æskileg þróun? Það leiðir líka hugann að því almennt hvað við erum farin að ganga langt í því að heimila úttektir á þessum sparnaði fyrr en ráð var fyrir gert. Nú veit ég að vissulega eru margir í miklum vanda. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af því að við séum að búa til vissan freistnivanda fyrir fólk sem þarf kannski ekki endilega á því að halda núna að taka þennan sparnað út og verja honum í alls konar hluti og þar með verði erfiðara um vik þegar ellin færist yfir?