151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

698. mál
[16:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel að þetta sé alveg gilt sjónarmið og mikilvægt að velta þessu fyrir sér. Ég hef hins vegar ekki áhyggjur af þessu. Ég tel að ef við skoðum þróun séreignarsparnaðarkerfisins heilt yfir þá sjáum við að það hefur verið vöxtur í kerfinu þrátt fyrir að við höfum verið með nokkuð víðtækar, skattfrjálsar heimildir til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán. Í tengslum við þau mál var það mín skoðun að við værum að auka frelsi fólks til þess að byggja upp fjármál sín til lengri tíma. Í þessu tilviki er hins vegar um hreina úttekt að ræða gegn skattgreiðslu. Það má spyrja sig að því hvort við séum að færa til í tíma þannig að það sé eitthvað grafið undan öryggi fólks á efri árum, en ég tel að vegna þess að við erum annars vegar eingöngu að tala um viðbótarlífeyrissparnað, frjálsan sparnað, sé ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þessu. Og svo verð ég að benda á hitt, að nýlega hefur stór hluti vinnumarkaðarins samið um að hækka lífeyrisréttindin úr 12% upp í 15,5% þannig að við höfum frekar verið að auka sparnað landsmanna. Þar var að sjálfsögðu um að ræða almenna markaðinn. Mér finnst ég hafa orðið meira og meira var við það sjónarmið í opinberri umræðu um lífeyrissjóðakerfið okkar að ef eitthvað er þá séum við mögulega að spara fullmikið, við séum að teygja okkur upp í tiltölulega hátt hlutfall af meðalævitekjum á efri árum. Það er alveg sérstakrar umræðu virði að kafa nánar ofan í það. Mín skoðun í því sambandi er sú að við eigum áfram að hvetja til sparnaðar. En mér finnst hins vegar að við eigum að auka frelsi fólks til þess að taka ákvarðanir um með hvaða hætti sérstaklega viðbótarlífeyrissparnaðinum öllum er varið.