breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Í framhaldi af svarinu: Er þá kannski orðið tímabært að velta því fyrir sér að við hættum að kalla þetta séreignarlífeyrissparnað og förum frekar að ræða um einhvers konar bundinn sparnað með tilteknum skilyrðum og tengjum það ekkert endilega við efri árin? Í því samhengi má líka velta því fyrir sér hvort það sé skynsamlegt eða hvort það sé jafnræði í því að tiltekin tegund af úttektum leysi menn undan því að borga skatt, eins og að fjárfesta í fyrstu íbúð, eða verja þessu inn á höfuðstól þar sem menn greiða raunverulega aldrei skatt af því. Af hverju mætti maður þá ekki færa úr þessum sparnaði yfir í einhverja aðra sjóði ef svo bæri undir? Því að ég reikna með að hugsunin í hinu sé sú að menn séu að viðhalda sparnaðinum, sem er ekkert garantí fyrir eins og við vitum. Það gerist nú ýmislegt á fasteignamarkaði þannig að menn geta auðveldlega tapað sparnaðinum þarna.
Svo að hinu leytinu, ef við leyfum þessar úttektir, sem við gerum, ég geri í sjálfu sér ekki neinn ágreining um það, ég er bara að velta fyrir mér þessum málum öllum: Hefur það eitthvað komið til tals eða hafa menn velt því fyrir sér hvort þeim sem taka út núna og borga skatt af séreignarsparnaði verði gert kleift með einhverjum hætti að greiða til baka inn í sama kerfi aftur? Menn geti þá lagt miklu meira inn í séreignarsparnaðinn af því að menn voru að bjarga sér tímabundið en vilja fara þarna inn aftur af einhverjum orsökum. Ég veit ekki hvort nokkur maður myndi vilja það, en ég velti því bara fyrir mér hvort það væri skynsamlegt að heimila mönnum að færa sitt fé til baka þegar betur stendur á.