151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

698. mál
[16:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki velt því fyrir mér hvort það gæti þjóna einhverjum tilgangi að heimila fólki að greiða til baka inn í kerfið. Ég sé ekki alveg í fljótu bragði hvernig það ætti að gagnast. En ég legg áherslu á að það mál sem við ræðum hér, sem er heimild til þess að taka út viðbótarlífeyrissparnaðinn áður en tími er til kominn, er til bráðabirgða. Þetta er eingöngu vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem hér hafa komið upp og við eigum að leggja okkur fram um að standa vörð um kerfið sem slíkt þannig að framfærsla sé tryggð þegar lífeyrisaldur nálgast. En það breytir ekki þeirri skoðun minni að einmitt þegar um frjálsan sparnað er að ræða þá ættum við að auka frjálsræðið í tengslum við meðhöndlun þess sparnaðar. Þá vísa ég til þess að menn eigi að hafa meira sjálfdæmi um það hvaða vörsluaðila þeir velja sér eða hvort viðkomandi einstaklingar kjósa hreinlega sjálfir að halda utan um þennan sparnað á bundnum reikningum sem þeir geta ekki leyst til sín. Slík kerfi eru þekkt til hliðar við lífeyriskerfið. Mér finnst það eiga að koma til skoðunar hjá okkur hvort einstaklingum ætti ekki að vera frjálst að eiga með beinum hætti, án þess að þar sé einhver milliaðili sem gegni vörsluhlutverki, t.d. hlutabréf eða einhver önnur sparnaðarform. Þá myndu einstaklinga bara sjálfir taka ákvörðun um það, enda er þetta frjáls viðbótarlífeyrissparnaður.