breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Virðulegi forseti. Heimildin til þess að taka skattfrjálst út viðbótarlífeyrissparnað, í þeim tilgangi að greiða inn á húsnæðisskuldir, á rætur sínar að rekja til þeirrar stöðu sem var uppi fyrir nokkrum árum, og var orðið sjálfstætt efnahagslegt vandamál, að skuldastöðu heimilanna hafði hrakað mjög alvarlega. Við fórum í mjög víðtækar aðgerðir, annars vegar í hina svokölluðu skuldaleiðréttingu og hins vegar í að gefa heimild til úttektar á viðbótarlífeyrissparnaði í þessum tilgangi. Ef við hefðum ekki gert þetta og bara látið þann tíma renna upp þar sem menn gátu tekið út séreignarsparnaðinn sinn hefði skattur verið greiddur af þeirri úttekt. Þess vegna segi ég alveg tvímælalaust að þetta er aðgerð sem heppnaðist mjög vel til að bæta eignastöðu heimilanna, hjálpaði mörgum að halda heimilum sínum þrátt fyrir skuldir sem höfðu vaxið í fjármálahruninu.
Síðan er það hitt að spyrja sig hvort gæti komið betur út að auka við tilfærslur eða að beita þessu úrræði sem við ræðum hér í dag, sem er úttekt gegn skattgreiðslu á séreignarsparnaði. Ég held að það þurfi ekki að reikna það lengi að það myndi fyrir mjög marga, alla atvinnulausa og þá sem eru háðir bótagreiðslum til framfærslu vegna sérstakrar stöðu, koma betur út að fá bætur greiddar út úr sjóðum ríkissjóðs. Síðan eru aðrir sem eru ekki í þeirri stöðu en vilja engu að síður bæta ráðstöfunartekjur sínar núna vegna ástandsins. Það geta verið fjölbreyttar ástæður fyrir því. Ég er ekki þeirrar skoðunar að við eigum að senda þau skilaboð til þess fólks að við ætlum að vera alveg sérstaklega blíð og tillitssöm við það með því að banna því að sækja í eigin sparnað.