breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign. Frumvarpið er á þskj. 1179 og er mál nr. 700. Í frumvarpinu eru m.a. lagðar til breytingar sem eru til komnar vegna yfirlýsinga ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins frá apríl 2019. Mun ég nú fara yfir helstu breytingartillögur sem frumvarpið felur í sér:
Í fyrsta lagi er lagt til að upphafsviðmiðunaraldur þegar réttindaávinnsla til ellilífeyris hefst, sem nú er frá 16 ára aldri, verði hækkaður í 18 ár. Þetta er eingöngu gert til að gæta samræmis við réttindaávinnslu til ellilífeyris í lögum um almannatryggingar. Í öðru lagi er lagt til að lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs verði hækkað úr 12% í 15,5% af iðgjaldsstofni í samræmi við breytingar sem orðið hafa á kjarasamningum. Í þriðja lagi er lagt til að meðaltal réttindaöflunar til mánaðarlegs ellilífeyris nemi 1,8% á ári af þeim mánaðarlaunum sem greitt er af og hækki þar með úr 1,4% eða úr 56% af meðallaunum í 72% af meðallaunum yfir 40 ára inngreiðslutíma. Í fjórða lagi er lögð til heimild til handa sjóðfélögum til að ráðstafa í heild eða að hluta hækkuninni á lágmarksiðgjaldinu til tilgreindrar séreignar. Nýti sjóðsfélagar sér þessa heimild lækkar meðaltal réttindaöflunar úr 1,8% á ári í allt að 1,4% á ári. Heimilt er að hefja úttekt tilgreindrar séreignar þegar sjóðfélagi hefur náð a.m.k. 62 ára aldri og skulu greiðslur dreifast jafnt að lágmarki yfir fimm ára tímabil. Við andlát sjóðfélaga fellur séreignin til erfingja. Í fimmta lagi er lagt til að lífeyrissjóðum og öðrum aðilum sem heimilað verður að taka við tilgreindri séreign verði gert skylt að senda Skattinum sundurliðun á ráðstöfun á lífeyrisiðgjaldi hvers manns. Er það talið nauðsynlegt þar sem lögin heimila að lífeyrisiðgjaldi sé ráðstafað þannig að hluta þess sé varið til öflunar lífeyrisréttinda í sameign og að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign. Jafnframt er að finna nýtt ákvæði þess efnis að lífeyrissjóðum og aðilum skv. 3. mgr. 8. gr. laganna verði gert skylt að tilgreina við útborgun hvaða hluti séreignar myndast af lífeyrisiðgjaldi, skv. 1. mgr. 2. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, og hvaða hluti séreignar myndast hefur á grundvelli viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar. Í sjötta lagi er lagt til að horfið verði frá því að lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóðum séu verðtryggðar mánaðarlega en í staðinn skuli þær verðbættar 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs næstliðins árs. Í sjöunda lagi er lagt til að lífeyrissjóðum verði heimiluð rafræn birting greiðsluyfirlita lífeyrisiðgjalda og upplýsinga um væntanleg lífeyrisréttindi. Sjóðfélagi mun eftir sem áður geta valið að fá yfirlitið á pappír. Að lokum er lagt til að á meðan í kjarasamningi er enn kveðið á um 12% iðgjald til lífeyrissjóðs sé heimilt að miða lágmarksiðgjaldið við 12%, þar til aðilar hafi náð saman um breytta hlutfallstölu í viðkomandi kjarasamningi. Eftir það beri að miða lágmarksiðgjald við 15,5%.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins til að staldra aftur við hækkunina úr 12% upp í 15,5% af iðgjaldsstofni og rifja það upp hér að þetta er liður í mjög stórri vinnumarkaðsaðgerð sem snýr að því að jafna lífeyrisréttindastöðu milli markaða. Það er ekki eingöngu mikilvægt lífeyrisréttindanna vegna heldur vegna þess að við höfum lengi og kannski í áratugi verið með mikinn samanburð og svona ákveðinn takt í kjaraviðræðum milli almenna markaðarins og hins opinbera þar sem almenni markaðurinn hefur að jafnaði verið leiðandi. Síðan gengur það nú dálítið á víxl hvort það er almenni markaðurinn sem vill bera sig saman við það sem gerist á opinbera markaðnum eða að opinberi markaðurinn horfi til hins almenna og segi: Þarna hafa átt sér stað einhverjar þær breytingar sem kalla á leiðréttingu okkar megin. Einmitt í þeim tilgangi að draga úr mun milli markaðanna hefur mikið verið á sig lagt af hálfu margra, vil ég bara segja, að stíga þetta stóra skref. Með því er þá verið að byggja undir þá framtíð á Íslandi að það sé óháð því hvort fólk hafi starfað á almenna markaðnum eða hinum opinbera, heldur hafi fólk yfir starfstíma sinn verið að vinna sér inn réttindi sem endurspeglast af 15,5% sem lögbundnu viðmiði. Ég tel að þetta sé mjög eftirsóknarverð breyting og ég tel að það sé mikið á sig leggjandi til að þetta geti gengið eftir. Það sem við finnum hins vegar þegar við nú komum í annað sinn fram með þetta frumvarp, reyndar í fyrsta sinn hér í þingsal, en við höfum verið með aðra útgáfu af þessu frumvarpi í umræðu og í samráði, er að það koma upp alls konar sjónarmið eftir því hver horfir á málið. Ég vil bara segja almennt um það að það er ekki óvænt að alls konar ólíkir hagsmunir rekist á þegar breyting af þessum toga er gerð. Eitt er bara einfaldlega að komast að niðurstöðu um það hvers konar réttindi eigi að vera bundin þessum 3,5% sem koma þarna til viðbótar. Hvernig eigum við að ramma það inn og skilgreina þau réttindi sem fylgja þeim? Ég held að við höfum heyrt alla flóru hugmynda sem hægt er að láta sér detta í hug. Af hálfu opinberu stéttarfélaganna höfum við heyrt því sjónarmiði hreyft að það sé óþægilegt að almenni markaðurinn sé að búa til ný réttindi um þessi 3,5% vegna þess að það séu engin slík sérréttindi upp á 3,5%, frá 12–15,5%, hjá opinberu félögunum, á opinbera markaðnum. Maður getur í sjálfu sér sýnt því sjónarmiði skilning en staðan sem við erum að reyna að leiðrétta er einmitt sú að öðrum megin eru bara 12% á meðan á opinbera markaðnum eru 15,5%. Það er vandamálið sem við erum að reyna að leysa. Hvað þetta sjónarmið snertir er í raun og veru verið að láta að því liggja að best færi á því að þetta færi ekki í tilgreinda séreign heldur færi helst allt saman í einhvers konar samtryggingu. Það er sjónarmið, skulum við segja, hluta opinbera markaðarins. Á hinum endanum eru þá þeir sem vilja að þessi viðbót, þessi 3,5%, fari einfaldlega inn í séreignarsparnaðarkerfið, viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið eins og við þekkjum það. Ég hygg að sagan sé einhvern veginn þannig að Samtök atvinnulífsins hafi haft þá hugmynd á sínum tíma, ætli þetta hafi ekki verið 2015 og 2016 sem frá þessu var gengið milli aðilanna; að það hafi upphaflega verið hugmynd Samtaka atvinnulífsins að launþegi ætti að geta tekið þessi 3,5% og ráðstafað að vild í viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið með öllum þeim kostum og göllum sem því kerfi fylgja. En um það tókst ekki samkomulag við ASÍ og þá var farin sú leið að semja um tilgreinda séreign. Stjórnvöld, sem að sjálfsögðu vildu styðja við viðleitni stóru aðilanna á vinnumarkaði til að leysa þetta mál, tóku því fagnandi að samkomulag hefði tekist um að fara upp í 15,5% og lýstu vilja til að færa þetta í lög. Þetta frumvarp fjallar um það. Á þessari vegferð hafa hins vegar verið teknar nokkrar byltur og nokkrir kollhnísar og togast hefur verið á um eitt og annað í útfærslunni. Ég held að það sé óhætt að segja að margt af því sem menn töldu sig hafa samið um hafi ekki verið almennilega útfært. Það kom þess vegna í hlut okkar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu að setja það niður á blað og útfæra það vegna þess að það voru ýmis útfærsluatriði sem ekki hafði verið tekið tillit til í viðræðum aðila á sínum tíma og það kom í okkar hlut að útfæra þau. Sum þeirra eru hér.
Ég get svo sem haldið áfram ræðu minni með því að koma inn á sum útfærsluatriðanna. Við getum bara næst hér rætt um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Tillögur að breytingum á lögunum snúa einna helst að skattfrjálsri heimild einstaklinga til að nýta tilgreinda séreign til kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði til viðbótar við ráðstöfun á viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar. Einnig er lagt til að einstaklingum sem ekki hafa verið skráðir eigendur að íbúðarhúsnæði í fimm ár frá því að umsókn um ráðstöfun barst Skattinum verði heimilað að nýta sér sömu séreignarsparnaðarúrræði og kaupendur fyrstu íbúðar. Mér finnst vera mjög góð hugsun á bak við þetta. Þetta kemur sér sérstaklega vel fyrir þá hópa launþega sem eru einfaldlega ekki þar í launastiganum að það safnist upp þau réttindi í viðbótarlífeyrissparnaðarkerfinu að líkur séu á því að þeir geti hámarkað rétt sinn gagnvart þessari ráðstöfun; launin eru einfaldlega ekki það há eða að viðkomandi hefur ekki verið með viðbótarlífeyrissparnað. Þá getur myndast þarna ákveðið gap á milli hópa og þá er lyft undir með tekjulægra fólkinu með því að það getur tekið tilgreindu séreignina skattfrjálst í sama tilgangi. Mér finnst vera mjög góð hugsun á bak við þetta.
Ég ætla ekki að gera lítið úr því að þeir eru til, eins og við sjáum a.m.k. í fjölmiðlum suma innan verkalýðshreyfingarinnar, sem eru þeirrar skoðunar að það eigi bara alls ekki að vera með allar þessar hömlur og sérreglur um þessi 3,5% heldur eigi þetta bara einfaldlega að fara inn í viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið og ekkert vera að flækja þetta. Þá hefðu menn í sjálfu sér getað nýtt sér viðbótarlífeyrissparnaðarkerfið eins og við höfum verið að ræða hér í dag, í tengslum við annað mál, til að ráðstafa til kaupa á fyrstu íbúð. Þá hefði það bara runnið saman og ég get alveg séð kostina við það. En hér er verið að reyna að endurspegla vilja aðila sem hafa samið um útfærslu milli sín.
Það er annað atriðið í útfærslunni hér sem skiptir verulega miklu máli og það varðar breytingar á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra. Það er þannig í frumvarpinu að lagt er til að hugtakanotkun í lögunum verði breytt og að kveðið verði á um það með skýrum hætti hvaða lífeyrisréttindi eiga ekki að koma til lækkunar við ákvörðun um ellilífeyri, tekjutryggingu og ráðstöfunarfé samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þetta skiptir verulegu máli. Við erum að ræða hér um að hægt sé að taka þessi 3,5% út án skerðinga á réttindum í almannatryggingakerfinu. Þetta er eitt af atriðunum sem opinberu félögin staldra við og segja: Kallar það ekki á að okkar félagsmenn fái líka að njóta tilgreindrar séreignar ef aðstæður eru þannig að þeir kjósi að byggja upp þann rétt og er þá búið að horfa nægilega til þess hvaða afleiddu áhrif verða á samtryggingarhluta kerfisins? Ég held að það sé langheiðarlegast að segja að allar líkur eru á því að þeir sem eru í opinberu kerfunum myndu vilja njóta þessa frelsis. En það er ekki alveg sjálfgefið að það komi vel út fyrir hvern og einn. Ég nefni sem dæmi að örorkulífeyrisrétturinn í lífeyristryggingakerfinu er að hluta tengdur því hver staðan er á samtryggingarréttindunum. Hafi menn kosið að nýta í þessu tilviki — ég vil bara nefna þetta í dæmaskyni hér — réttinn til að byggja upp 3,5% af tilgreindri séreign þá er því minna af réttindum í samtryggingarhlutanum sem aftur getur spilað út í lægri örorkuréttindi í framhaldinu ef kemur til örorku, þannig að það er í mörg horn að líta í þessum efnum.
Ég vil síðan nefna hér að í frumvarpinu eru tillögur að afleiddum breytingum á lögum um tekjuskatt og lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Það gengur út á það að ákvæði um hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og tilgreindrar séreignar verði lögfest. Ef ákvæðið um hækkun lágmarksiðgjalds og tilgreinda séreignin er lögfest eru þarna afleiddar breytingar á þessum lögum um tekjuskatt og lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Það eru fjölmargir launagreiðendur á almennum vinnumarkaði sem greiða nú þegar 11,5% mótframlag í lífeyrissjóð. Samkvæmt ársreikningum lífeyrissjóðanna greiða á bilinu 77–100% launagreiðenda, mismunandi eftir sjóðum, nú þegar 11,5% framlag. Afsakið, þetta er launagreiðendahlutfallið. Það eru sem sagt margir launagreiðendur sem greiða nú þegar 11,5% mótframlag, á bilinu 77–100%. Við skulum segja að það séu ekki 100% og ekki 77%, það er einhvers staðar á því bili, sem eru nú þegar að greiða þetta launagreiðendaframlag. Af þessari ástæðu eru þær breytingar sem verið er að fjalla um í frumvarpinu að snerta færri en ella hefði verið. Þá vil ég líka nefna að fleiri leiðir til söfnunar lífeyrisréttinda með tilkomu tilgreindrar séreignar munu auka möguleika sjóðfélaga á því að ráðstafa sparnaði sínum með sem hentugasta hætti. Tilgreind séreign hefur það t.d. umfram greiðslu í samtryggingarsjóði að hún erfist eins og gildir um annan séreignarsparnað en velji sjóðfélagi hins vegar að ráðstafa lífeyrissparnaði sínum að hluta í tilgreinda séreign munu lífeyristekjur hans við lok starfsævinnar í minna mæli koma úr samtryggingarsjóðum en annars hefði verið, eins og ég rakti aðeins áðan, og tryggingarverndin, eins og ég rakti sömuleiðis dæmi um, getur skerst.
Mig langar aðeins í blálokin að koma inn á atriði sem ég nefndi. Það er lagt til hér að á meðan í kjarasamningi er kveðið á um 12% sé heimilt að miða við það í þessu sambandi. Af hverju er þessi grein í frumvarpinu? Ég held það sé langeinfaldast að segja að hún sé þarna vegna þess að á sínum tíma þegar samkomulag tókst milli aðila á vinnumarkaði um að fara upp í 15,5% voru ekki allir aðilar að því samkomulagi. Það voru ekki allir aðilar að samkomulaginu. Stjórnvöld hafa talið mjög mikilvægt að vera samstiga og styðja við meiri háttar kerfisbreytingar sem aðilar á vinnumarkaði hafa komið sér saman um með samkomulagi og við erum að fylgja samkomulaginu eftir með lagaskyldu og klappa þetta þannig í stein. En það eru viss mörk á því hversu vítt við getum túlkað samningsumboð þeirra sem þarna áttu í hlut. Á meðan aðrir þeir sem ekki áttu beina aðild að samningnum hafa ekki samið sín í milli um að fara í 15,5% væri það mjög langt gengið af okkar hálfu að lögfesta 15,5%. Ég hygg t.d. að þeir sem stóðu að samkomulaginu um 15,5% hefðu tekið það heldur óstinnt upp ef þingið hefði komið hér án samtals og samráðs við þá og bara lögfest 15,5%. Ég held að því hefði verið tekið heldur fálega. Reyndar held ég að það hefði soðið upp úr. Í þessu sambandi held ég að við verðum að skoða þessa grein, það verður aðeins að líta til þeirra sem ekki áttu beina aðild að samkomulaginu. Það er ekki þannig að menn geti skuldbundið þá sem þeir hafa ekki umboð fyrir í þessu sambandi. Þetta segi ég jafnvel þó að löggjafinn hafi að sjálfsögðu óbundnar hendur í þessu efni. Við getum að sjálfsögðu sett lög um efnið en ég tel að miklu betur fari á því að gefa mönnum svigrúm til að ná með samningum samkomulagi um þetta. Þar getur m.a. þurft að horfa til þess að launauppbyggingin er með misjöfnum hætti á vinnumarkaðnum.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið nokkur helstu atriði málsins eða öll efnisatriðin og komið inn á söguna og skýringar á bak við einstök atriði. Þetta er, eins og ég nefndi í upphafi, dálítið flókið mál og snertir viðkvæman málaflokk: Það er flókið hvað það snertir að það virðist fara mjög eftir því úr hvaða sæti menn horfa á málið hvaða augum þeir líta það. Þetta er mál sem hefur mjög beina raunhæfa þýðingu fyrir marga launþega í landinu, við gætum sagt yfirgnæfandi meiri hluta. En grunnurinn í málinu, kjarni málsins, er sú jákvæða breyting að fara úr 12% upp í 15,5%. Ég myndi vilja leggja á það áherslu, sama hvað líður ólíkum skoðunum um útfærsluatriði, að við ættum að sameinast um að standa vörð um þá mikilvægu kerfisbreytingu. Það er ofboðslega stórt og mikilvægt mál fyrir íslenskan vinnumarkað að innsigla breytingu upp í 15,5%. Í því sambandi er rétt að láta þess getið að ég er með á skrifborðinu mínu drög að erindisbréfi fyrir grænbókarvinnu um lífeyrissjóðakerfið í heild sinni. Það er margt sem bíður okkar að fara yfir og skoða og staldra við og spyrja stórra spurninga, m.a. um framtíð kerfisins, hvaða breytinga sé þörf í ljósi breytinga á umhverfinu. Það hefur gengið vel að ávaxta sjóði landsmanna í lífeyriskerfinu á undanförnum árum. Það fylgja því ýmsar áskoranir hversu stórt kerfið er orðið. Kerfið er líka flókið. Hvað getum við gert til þess að einfalda kerfið? Ég er persónulega þeirrar skoðunar að við ættum að auka við frelsi sjóðfélaga til þess að hafa ákvörðunarvald um sparnaðarform, sérstaklega viðbótarlífeyrissparnaðarhlutans. Það er bara einn lítill þáttur af mörgum sem þarf að ræða. Lýðræði í lífeyrissjóðunum er umræðunnar virði og margt sem tengist sjálfu lífeyrissjóðakerfinu þarf að taka til skoðunar í þeirri vinnu. Það er ekki hluti af því þingmáli sem liggur fyrir en ég vildi bara láta þess getið hér í blálokin að við erum að fara að hrinda þessari vinnu af stað. Eitt af stóru málunum í því sambandi er t.d. bara lífeyristökualdurinn: Hvenær eigum við að taka lífeyri í framtíðinni? Þjóðin er að eldast. Hvað segja útreikningar okkur um það hvort við þurfum að hreyfa viðmiðin um lífeyristökualdur? Þar ætti sjálfbærni að vera okkar leiðarljós í allri umræðu, að við tryggjum að ekki sé blæðing í kerfinu. Það bíður okkar heilmikil umræða um þetta. Oft er rætt um það hér í þinginu t.d. að við ættum að lengja starfsævina hjá fólki og ég er svona almennt hlynntur möguleikum fólks til þess að starfa eins lengi og það kýs. Það er í mörg horn að líta þar sömuleiðis.
Virðulegi forseti. Ég er búinn að tæma mál mitt og vil leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.