breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Virðulegi forseti. Það er í fyrsta lagi þannig að þetta mál hefur ekki bara birst áður heldur hefur það verið í u.þ.b. tvö ár í vinnslu í ráðuneytinu. Haldnir hafa verið fjölmargir samráðsfundir, bæði með Samtökum atvinnulífsins og ASÍ, lífeyrisnefnd ASÍ hefur komið að samráðinu. En það er ekki þannig að við séum að reyna að halda því fram að hvert einasta atriði í frumvarpinu hafi verið samþykkt og blessað af öðrum hvorum aðilanum eða einhverjum þeirra sem leitað var samráðs við. Það er ekki heldur þannig að ég biðji leyfis hjá ASÍ eða einhverjum öðrum aðila að leggja frumvarp fyrir Alþingi. Það er ekkert verið að halda því fram í frumvarpinu að hvert og eitt einasta atriði hafi verið unnið þannig að allir séu ofboðslega sáttir. En samráðið var haft og ég rakti það í löngu máli hver rót málsins er. Hækkun upp í 15,5%, útfærsla á því, það er þetta vandasama verk. Og nákvæmlega það sem ég nefndi í framsögu minni: Það skiptir máli úr hvaða sæti maður skoðar málið, hvaða skoðun maður hefur á því.