breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Virðulegur forseti. Ég verð nú bara að viðurkenna að ég er mjög hrifinn af þessum hugleiðingum hv. þingmanns. Það er einmitt þannig að við látum ekki segja okkur fyrir verkum. En við styðjum við áform vinnumarkaðarins um að jafna lífeyristökuréttindastöðuna milli markaða. Það var gerð mjög virðingarverð tilraun til að gera það, í tengslum við kjaralotu, með því að hækka framlag atvinnurekenda og við erum bara með stöðu núna þar sem, eins og ég rakti í máli mínu, velflestir eru að greiða þetta hlutfall launagreiðandans. Við erum hins vegar með þá stöðu á sama tíma að ekki hefur verið full sátt um það hvernig þessari jöfnun er þá náð og á meðan það er ekki botnað með lagasetningu þá eru aðrir sem eru mjög ósáttir. Meira að segja með því að gera ekki neitt, jafnvel þótt menn höfnuðu frumvarpinu og breyttu ekkert lögunum, værum við líka með marga mjög ósátta. Það er ekki hægt að leiða þetta mál til lykta þannig að allir verði sáttir ef einhver hefur haldið það.