breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Virðulegur forseti. Eins og ég segi er það ekkert slæm hugmynd að þessi 3,5% séu bara í viðbótarlífeyrissparnaðarkerfinu. Það er hins vegar ekki tillagan hér og verið er að horfa til þess að menn höfðu lagt á sig gríðarlega mikla vinnu til að ná sátt, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið, um að búa til þetta fyrirbæri, tilgreinda séreign, sem er nú orðið sjálfstætt deiluefni innan verkalýðshreyfingarinnar og vísa ég þá aftur til þess sem ég sagði áðan um einhverjar boðaðar stefnur í því efni. En svo er það opinberi markaðurinn sem hv. þingmaður virðist ekki átta sig á að verður ekki sáttur við tillöguna heldur. Það er ekki þannig að það séu bara einhverjir fáir innan verkalýðshreyfingarinnar á almenna markaðnum sem yrðu ósáttir. Nei, opinberu félögin vilja helst að nýja fyrirkomulagið á almenna markaðnum sé eins og á opinbera markaðnum, það er það sem þau vilja helst. Ef opinberu félögin hafa athugasemdir við tilgreindu séreignina munu þau hafa enn frekari athugasemdir við að til verði einhver viðbótarlífeyrissparnaður upp á 3,5% sem hægt sé að njóta réttinda af með þeim hætti sem við þekkjum.