breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Virðulegur forseti. Eins og komið hefur fram erum við að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóða og ákvæða um tilgreinda séreign. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum og annars staðar er verkalýðshreyfingin ekki par sátt við það sem hér er í gangi. Til að átta okkur aðeins á því hvað er virkilega í gangi ætla ég, með leyfi forseta, að lesa upp það sem Vilhjálmur Birgisson á Akranesi skrifaði á heimasíðu verkalýðshreyfingarinnar þar:
„Ótrúleg vinnubrögð varðandi breytingu á lögum um lífeyrissjóði.
Á fimmtudaginn kom eins og þruma úr heiðskíru lofti frumvarp um breytingar á lögum um lífeyrissjóði. Þetta frumvarp lýtur að því að því að hækka lögfestingu á lágmarksiðgjaldi til lífeyrissjóðanna úr 12% í 15,5%. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um að iðgjaldið renni inn í samtrygginguna en launafólk hafi heimild til að setja 3,5% af 15,5% í svokallaða tilgreinda séreign en það þurfi þá að hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð kjósi það að gera svo.
Það er einnig kveðið á um í frumvarpinu að launafólk eigi ekki að byrja að greiða í lífeyrissjóð 16 ára eins og nú sé heldur verði það við 18 ára aldur. Formaður spyr: Eiga þá laun þeirra sem eru á aldrinum 16 til 18 ára að hækka sem nemur 11,5% eða eiga atvinnurekendur að hagnast á þessari breytingu sem nemur gjaldfrjálsum iðgjöldum upp á 11,5% í 2 ár?
Þetta þýðir sparnað fyrir atvinnulífið upp á tæpar 800 milljónir á ári. Hugsið ykkur, það á að taka 800 milljónir af unga fólkinu og færa yfir til atvinnurekenda.
Ekkert mál að fresta greiðslum í lífeyrissjóði úr 16 árum í 18 ár en látið þá unga fólkið fá þessar 800 milljónir annaðhvort í formi 11,5% launahækkunar eða sem inneign í séreignasjóði.
Ekki „stela“ 800 milljónum af unga fólkinu á ári með því að lauma svona frumvarpi í gegn!“ — segir verkalýðsleiðtoginn. Áfram segir, með leyfi forseta:
„Það er fleira sem er alveg ótrúlegt í þessu frumvarpi en eins og lífeyrisþegar vita er lífeyririnn verðtryggður ef þannig má að orði komast og hann tekur breytingum samkvæmt neysluvísitölu Hagstofunnar og koma þær breytingar fram mánaðarlega í núgildandi lögum. En í frumvarpinu er kveðið á um að hækkun á lífeyri launafólks komi ekki til framkvæmda nema einu sinni á ári. Þannig að lífeyrisþegar fá ekki verðbætur ofan á verðbætur mánaðarlega eins og nú er.
Þetta þýðir að einstaklingur sem er 67 ára og er með 350 þúsund í lífeyri verður af verðbótum sem nema tæpum 70 þúsundum á ári miðað við 4% verðbólgu.
Frá 67 ára töku lífeyris til 83 ára aldurs væri búið að hafa af þessum lífeyrisþega rétt tæpar 2 milljónir króna!
Ekki lauma fram frumvarpi sem „stelur“ af lífeyrisþegum 2 milljónum af lífeyri þeirra með þessum breytingum á 16 ára tímabili á töku lífeyris. Væri fróðlegt að vita sparnað lífeyrissjóðanna ef þessi breyting færi í gegn. Ugglaust er um marga milljarða að ræða!
Já, ekkert mál að breyta lögum í þessa átt hjá lífeyrisþegum en að gera slíkt á verðtryggðum húsnæðisskuldum heimilanna, nei, það kemur þessari ríkisstjórn ekki til hugar. Ekkert mál að leggja verðbætur ofan á skuldir heimilanna í hverjum mánuði en það þarf að stoppa af að lífeyrisþegar fái verðbætur ofan á verðbætur í hverjum mánuði.
Þetta er alls ekki það eina sem er algjört rugl í þessu frumvarpi því það er tryggt að t.d. sjómenn sem eru með 12% hámark í lífeyrissjóð fari ekki í 15,5%, þá á að undanskilja frá lögunum. Já, stjórnvöld vilja koma vel fram við útgerðarmenn og ekki leggja frekari álögur á þá.
Verkalýðsfélag Akraness hefur lengi barist fyrir því að launafólk hafi aukið val og frelsi til að ákvarða hvar og hvernig það ráðstafar sínum lífeyri. VLFA hefur barist fyrir því að auka rétt fólks til að setja sinn lífeyri í svokallaða frjálsa séreign en í dag er lágmarksiðgjaldið 12% en flestir eru að greiða 15,5% í iðgjöld. VLFA hefur barist fyrir því að launafólk ráði sjálft hvert það setur 3,5% sem eru umfram lágmarksiðgjaldið eins og lögin kveða á um í dag. Það eigi að hafa val um það hvort það setur það í samtrygginguna eða frjálsa séreign.
Nei, þetta má ekki, allt skal renna til lífeyrissjóðanna og síðan á að lögfesta og flækja lífeyriskerfið enn frekar með einhverjum viðbótarbastarði sem ber heitið tilgreind séreign.
Það sorglega í þessu er að ekkert samráð var haft við stéttarfélögin sem hafa lögvarða hagsmuni af því að semja um kaup og kjör sinna félagsmanna. En lífeyrisréttindi eru klárlega hluti af kjarasamningum stéttarfélaganna og það er á þeirra valdsviði samkvæmt öllum gildandi lögum.
Málið er að VLFA var langt komið með að semja við Elkem Ísland á Grundartanga um að 12% af 15,5% iðgjaldinu færi í samtrygginguna og starfsmenn mættu velja að setja 3,5% í frjálsa séreign ef þeir vildu svo.
Samtök atvinnulífsins og forseti ASÍ segja nei, það eruð ekki þið sem sjáið um að semja um lífeyrismál, þau eru á forræði SA og ASÍ. En orðrétt sagði forseti ASÍ í pósti til formanns um daginn: „Lífeyrissjóðirnir hvíla á kjarasamningi á milli Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands en samningsumboðið er ekki hjá hverju stéttarfélagi fyrir sig eins og löngu er orðið ljóst.“
Já, stéttarfélögunum kemur þetta bara ekkert við né félagsmönnum þeirra þrátt fyrir að öll lög kveði á um annað.
Hér er um gríðarlega hagsmuni að ræða fyrir launafólk og því hefur félagið falið lögmanni VLFA að stefna ASÍ og Samtökum atvinnulífsins sem segja að samningsumboð stéttarfélaganna nái ekki yfir lífeyrismál í kjarasamningum. Slíkt þvaður hefur enga lagastoð!
Formaður VLFA skal fúslega viðurkenna að þessi skefjalausa meðvirkni með lífeyrissjóðskerfinu af hálfu forystu ASÍ er með öllu óskiljanleg. Formaður vill að haft verði samráð við stéttarfélögin sem hafa lögvarða hagsmuni í þessum málum og að lágmarksiðgjald verði áfram 12% en launafólk fái heimild til að ráðstafa viðbótinni sem er 3,5% í frjálsa séreign kjósi það svo.
VLFA hafnar því að SA og ASÍ geti tekið yfir lögvarða hagsmuni félagsins við að gæta að lífeyrisréttindum félagsmanna VLFA og á þeirri forsendu verður þessum aðilum stefnt fyrir Félagsdóm.
Formann langar að spyrja ykkur launafólk: Viljið þið hafa val um að ráðstafa 3,5% af 15,5% í frjálsa séreign? Það er mitt mat að launafólk verði að láta í sér heyra til að koma í veg fyrir að fámenn klíka ákveði og miðstýri rétti launafólks varðandi hvar og hvernig það vill ráðstafa sínum lífeyri.“
Svo mörg voru þau orð og ég tek heils hugar undir þau. Við verðum að átta okkur á því að lífeyrissjóðirnir eru lögþvingaður, eignaupptökuvarinn sparnaður. Þetta eru laun og ömurlegt til þess að hugsa að áratugum saman sé búið að misnota þessi laun sem verkafólk hefur unnið fyrir í þágu atvinnurekenda. Við eigum að læra af reynslunni en það virðist ekki vera snefill af lærdómsreynslu hjá þessari ríkisstjórn af hruninu. Hún virðist vera búin að steingleyma hundruðum milljarða sem töpuðust. Hvernig í ósköpunum er hægt að láta það viðgangast áratugum saman að atvinnurekendur, sem eiga engan rétt á að gambla með þessa peninga eða hafa vald yfir peningum í lífeyrissjóðum, gambli með þessa peninga á markaði? Við erum að tala um í 6.000 milljarða í lífeyrissjóðskerfinu. Við erum að tala um aukningu í lífeyriskerfið upp á 100 milljarða kr. á mánuði og skatttekjur í því samhengi, skatttekjur sem geta tapast, skatttekjur sem töpuðust. Enginn veit hversu mikið það er uppreiknað í dag en nálgast örugglega 500 milljarða tap í hruninu af skatttekjum, og við ætlum ekki að læra af þeirri reynslu.
Þetta eru gífurlegir fjármunir og Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp um það að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði. Hvað ættum við að gera við þá peninga? Aðgerðin gæti strax skilað okkur 70–80 milljörðum kr. Auðvitað ættum við að nota þá fyrir það fólk sem á þá og hefur unnið fyrir þeim, sjá til þess að koma kerfinu í það lag sem var þegar við tókum upp staðgreiðslu á sínum tíma, og allir virðast vera búnir að gleyma. Þegar staðgreiðsla skatta var sett á var ekki greiddur skattur af lægstu launum eða lífeyrislaunum almannatrygginga og það var afgangur, meiri afgangur upp í lífeyrislaun frá lífeyrissjóði. Í dag er enginn sem sleppur við skattinn. Persónuafslátturinn hefur ekki fylgt verðlagi. Sú gífurlega hækkun skatta sem hefur verið lögð á þá sem eru á lægstu lífeyrislaunum og launum í dag, hækkun upp á 30.000–40.000 kr. á lægstu lífeyrissjóðslaunum, er bara hrein og klár hækkun. Ef við myndum líka reikna rétt, ef við myndum reikna persónuafsláttinn og ef við myndum taka kjaragliðnunina sem varð, þá værum við ekki að borga nokkrum einstaklingi á Íslandi undir 300.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. En það er kannski einhver draumur í dós sem er fjarlægur nema einhverjar gífurlegar breytingar verði hér á þingi, því miður.
Við sjáum það á þessu frumvarpi, sem hæstv. fjármálaráðherra hefur gert ótrúlega flókið þó að það sé eiginlega einfaldasta mál sem hægt væri að leggja fyrir þingið. Hann gat komið með frumvarpið í algjörri sátt við allt og alla, en nei, þá þarf hann að lauma inn þessum ótrúlegu bastörðum um að svipta 16–18 ára börn lífeyrisréttinum. Hvernig er hægt að láta sér detta það í hug? Kannski er hægt að láta sér detta það í hug en að framkvæma það er alveg gjörsamlega óskiljanlegt fyrirbrigði.
Hvernig í ósköpunum er hægt að láta sér detta í hug að setja ofan á að skerða útgreiðslur úr lífeyrissjóðunum að breyta verðbótum á neysluvísitölunni, breyta því ofan á allar aðrar skerðingar sem eru í kerfinu? Við verðum að átta okkur á því að t.d. þegar við erum að tala um lífeyri, þessi 12% sem verða þarna inni, þá erum við að tala um lífeyri sem verður fyrir 45% skerðingu. Fyrst er skattað og svo skert 45%. Í mörgum tilfellum, þegar koma inn í þetta líka keðjuverkandi skerðingar, þá erum við að tala um skattheimtu alveg upp undir 80–90%. Engum dettur í hug að setja svoleiðis skatt á en þetta er hægt að gera með krókaleiðum, og gera þetta virkilega flókið eins og hæstv. fjármálaráðherra hefur gert, eins og ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur gert með almannatryggingalaun og lífeyrissjóðslaun.
En eins og ég segi, við eigum að taka okkur saman og einfalda þetta. Þetta er ekki flókið, eins og ég sagði, við getum bara sett inn 3,5% viðbótarlífeyrissparnað, hver og einn launamaður ræður hvað hann gerir við hann, hvert hann leggur það inn, hvort hann setur það í örugga fjárfestingu eða áhættufjárfestingu. En út með hitt sem er hérna í frumvarpinu og þá held ég að flestallir geti orðið sáttir, nema auðvitað Samtök atvinnulífsins vegna þess að þau sætta sig aldrei við annað en að þau fái alla þessa peninga, helst inn í lífeyrissjóðina og helst þannig að þau geti nýtt þetta. Þeir gífurlegu fjármunir sem við erum að dæla inn í lífeyrissjóðina eru nú þegar farnir, tel ég, að skaða okkur vegna þess að þeir eru eiginlega farnir að kaupa í sjálfum sér. Þetta gengur ekki upp. Það virkar ekki inni í þessu litla hagkerfi okkar að vera með alla þessa fjármuni hér þannig að þeir vilja auðvitað fara með þá erlendis. Það þýðir gjaldeyri og það þýðir að það bitnar á almenningi í sambandi við að kröfur um 3,5% ávöxtun á þessu eru að valda því að kerfið er að bíta þá sem síst skyldi.