breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Frú forseti. Það blandast engum hugur um það mál sem hér er rætt, þ.e. breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign, þar sem m.a. eru lagðar til breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, lífeyrissjóðalögin, sem svo eru nefnd oft og tíðum og eru nr. 129/1997. Það blandast engum hugur um að innsti kjarni þessa máls er að stjórnvöld eru að styðja við gerð kjarasamninga, eins og rakið er hér í skýringum, sérstaklega við 2. gr. Þar er gerð grein fyrir kjarasamningum ASÍ og Samtökum atvinnulífsins árið 2011 þar sem aðilar settu sér það markmið að samræma og jafna réttindi á almennum og opinberum markaði o.s.frv. Sömuleiðis er fjallað um lífskjarasamningana, sem svo eru nefndir, frá 3. apríl 2019. Þar kemur fram að lögfestingin á 15,5% lágmarksiðgjaldi til lífeyrissjóðs er einn liður í yfirlýstum stuðningi stjórnvalda við samninginn. Þetta er allt saman gott og blessað. Síðan eru önnur atriði mikilvæg þarna sem lúta m.a. að ráðstöfun séreignarsparnaðar og öðru af því tagi. En það breytir ekki því að uppi eru miklar áhyggjur af þessu frumvarpi. Maður finnur það glöggt á samtölum að félög eldri borgara eru mjög hugsi yfir tilteknum atriðum í þessu frumvarpi. Ég nefni sérstaklega það atriði sem hefur verið rætt svolítið í þessari umræðu, sem er breytingin á verðtryggingu lífeyris sem lífeyrissjóðir greiða og hefur verið með þeim hætti a.m.k. síðan 1997 að greiðslur taka breytingum eftir vísitölu neysluverðs. En nú er gerð tillaga um að það verði ekki lengur mánaðarlega heldur aðeins einu sinni á ári, miðað við 1. janúar ár hvert, og þá sé miðað við verðbólgu á næstliðnu ári.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra gerði lítið úr þessu atriði í andsvörum hérna áðan og lagði áherslu á þær stóru línur sem eru í þessu frumvarpi, en engu að síður verður að ræða þetta. Það vakti athygli mína a.m.k. að ráðherra gat ekkert sagt eða gat engu svarað spurningu um hvert væri tilefni eða tilgangur þessarar breytingar eða hvaða skýringar væru á því að þessi breyting er ekki studd neinum gögnum um mat á áhrifum fyrir sjóðfélaga annars vegar og fyrir fjárhag lífeyrissjóðanna hins vegar, þess vegna áhrifum á ríkissjóð vegna samspils lífeyrissjóðakerfisins og almannatryggingakerfisins. Það kom hins vegar fram í máli hæstv. ráðherra að hann telur þetta léttvægt og lítilvægt atriði þannig að ég leyfi mér að hvetja hæstv. ráðherra, úr því að hann telur þetta svona léttvægt og úr því að hann getur ekki gert neina grein fyrir þessu máli, af hverju gerð er um þetta tillaga, til þess að draga þetta ákvæði til baka, 6. gr. frumvarpsins, sem við ræðum hér, um það að verðtryggingin á lífeyrisgreiðslur komi aðeins til framkvæmda einu sinni á ári en ekki mánaðarlega eins og núna er. Það hlýtur að vera auðvelt fyrir hæstv. ráðherra vegna þess að hann er búinn að segja það í þessum ræðustól að hann telji þetta léttvægt atriði og gat engu svarað um hvert væri tilefni eða tilgangur þeirrar tillögu sem gerð er í 6. gr.
Í frumvarpinu er skýring við þetta atriði, það er bara ein setning þar sem vísað er til samspils lífeyrissjóðakerfisins og kerfis almannatrygginga og sagt, með leyfi forseta:
„… breytt framkvæmd getur dregið verulega úr kröfum Tryggingastofnunar ríkisins um endurgreiðslur vegna vanáætlunar á greiðslum frá lífeyrissjóðum í byrjun árs.“
Frú forseti. Þetta er svo aumleg skýring að ekki verður hjá því komist að lýsa undrun á því að boðið sé upp á svo vesældarlegar skýringar eins og hér um ræðir. Í fyrsta lagi er notað orðalagið „breytt framkvæmd“ og það er eins og til þess að breiða yfir það að breytingin getur falið í sér kjaraskerðingu og mun að öllum líkindum gera það. Síðan er því teflt fram að þessi breyting eigi að hjálpa Tryggingastofnun við áætlunargerð. Er þetta eitthvert atriði sem getur réttlætt það að eldra fólk sé sett í algjöra óvissu um sinn hag? Verðlagið er nú orðið stöðugra en verið hefur um langt skeið en snemma á þessu ári reið yfir verðbólgugusa, eins og allir þekkja, og verði þetta frumvarp að lögum, þar á meðal þessi 6. gr., þá mun fólk standa algerlega óvarið gagnvart slíkri verðbólgugusu og hún yrði óbætt í heilt ár. Það er því full ástæða til þess að fólk hafi af þessu áhyggjur. Þessi frumvarpsgrein skapar óvissu meðal lífeyrisfólks um fjárhag og framfærslu og þeirri óvissu verður að eyða tafarlaust.
Frú forseti. Það eru nokkur atriði sem ástæða er til að nefna. Hér fyrr í umræðunni var svolítið rætt um samráð við aðila vinnumarkaðarins og það kemur fram í fjölmiðlum, ég vísa hér til að mynda til Morgunblaðsins í dag þar sem haft er eftir Drífu Snædal, forseta Alþýðusambands Íslands, að Alþýðusambandið hafi gert alvarlegar athugasemdir við fram komið lífeyrisfrumvarp og það sé ekki rétt, segir forseti ASÍ, sem sagt sé í greinargerð að það hafi verið unnið í samráði við ASÍ. Þetta leiðir auðvitað hugann að því að það hefur um mjög langa hríð verið þannig að lífeyrismálin hafa verið á forræði aðila vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa um langan aldur kosið að hafa náið samráð við aðila vinnumarkaðarins um breytingar á lögum sem lúta að lífeyrismálum. Þegar loksins tókst að ljúka því ætlunarverki að setja lög um málefni lífeyrissjóðanna, lífeyrislögin frá 1997 sem ég vitnaði til áðan, þá var það ekki síst fyrir tilstuðlan og vinnu aðila vinnumarkaðarins og stefnumótunar á þeirra vegum sem sást síðan í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 129/1997.
Það er ástæða til að fagna því sem ráðherra lýsti, áformum hans um það sem hann kallaði grænbók þar sem fjallað verður um framtíðarmálefni á sviði lífeyrismálefna eða lífeyrismála. Það eru margar áleitnar spurningar sem vakna upp í því sambandi. Hann nefndi nokkur atriði. Ég vil leyfa mér að bæta við að það þarf að líta á skattlagningu lífeyrisgreiðslna sem nú eru skattlagðar eins og þetta væru launatekjur þó svo að þær séu að verulegu leyti fjármagnstekjur vegna ávöxtunar iðgjalda í sjóðunum. Það er ástæða til þess að skoða þetta atriði mjög vel. Það sama á við um skattlagningu séreignarsparnaðar sem er með sama hætti skattlagður eins og um launatekjur sé að ræða, þegar verulegur hluti þess fjár sem um ræðir er til kominn vegna ávöxtunar fjármuna í séreignarsjóði. Ég hvet til þess að þessi atriði verði höfð í huga þegar ráðist verður í gerð þessarar grænbókar.
Ég hlýt að ljúka máli mínu á því að segja að þetta frumvarp snertir marga þætti. Það hefur komið fram, eins og í þessari umræðu og í fjölmiðlum, að Alþýðusambandið hefur miklar áhyggjur af hækkun lífeyrisaldurs úr 16 í 18 ár. Það eru þarna opnar spurningar sérstaklega varðandi sjómenn. Þetta verður að skoða mjög vel, fyrir utan verðtryggingardæmið og náttúrlega stóru línurnar í þessu frumvarpi yfirleitt. Það er mjög mikilvægt að Alþingi vandi hér mjög til verka. En ég vil ljúka máli mínu á að ítreka hvatningu mína til hæstv. ráðherra um að eyða þeirri óvissu sem uppi er meðal eldra fólks vegna 6. gr., um að hverfa frá mánaðarlegri verðtryggingu lífeyrisgreiðslna yfir í árlega. Ég vil hvetja ráðherra til að eyða þeirri óvissu með því að draga þá grein út úr frumvarpinu.