breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið eða raunar viðbótarhugleiðingar hans hér. Ef ég gríp aftur boltann á lofti frá hv. þingmanni, þá er það þannig að þörf lífeyrissjóðanna fyrir að fjárfesta erlendis vegna þess að það eru ekki allt of margir fjárfestingarkostir hér í boði — nema auðvitað að ríki og sveitarfélög myndu ráðast í það fjárfestingarátak sem maður hefur leitast við að tala hér fyrir þrásinnis, um innviðauppbyggingu í landinu, sem væri þannig að það væru skuldabréf sem myndu falla vel að eignasafni lífeyrissjóðanna og þjóna þeirra hagsmunum. Á meðan lífeyrissjóðirnir eiga ekki kost á raunhæfum fjárfestingarkostum hér á landi þá þurfa þeir að fara úr landi. En það er um slíkar fjárhæðir að tefla að það setur umtalsverðan þrýsting á gengi krónunnar, þannig að þetta hangir allt saman.
Hv. þingmaður nefndi hættuna á því að sjóðirnir næðu miklum fjárhagslegum ítökum í íslensku samfélagi. Hann talaði um vald yfir íslensku hagkerfi. Það rifjar upp draumsýn eða hugsjón gamals jafnaðarmanns, sem var Olof Palme í Svíþjóð. Við hann var náttúrlega kenndur ákveðinn sjóðasósíalismi og manni verður stundum hugsað til hans, að það má ekki gerast að það rætist að hér verði einhver sjóðasósíalismi í gegnum lífeyrissjóðina.
Ég vil líka víkja að því sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. annars vegar söfnun og hins vegar gegnumstreymi. Þeir sem settu lífeyrissjóðina á laggirnar voru mjög framsýnir menn beggja vegna, mjög mikilhæfir menn, til að mynda í Alþýðusambandinu. Þeir ákváðu að þetta yrðu söfnunarsjóðir og það hefur hingað til reynst vel.