breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.
Frú forseti. Það verður ekki hjá því komist að þetta frumvarp verði lagfært í meðförum Alþingis. Það er alveg útilokað annað. Það er alveg útilokað og ef hæstv. fjármálaráðherra verður ekki við þeirri hvatningu sem ég hef leyft mér að beina til hans, að draga 6. gr. til baka, hlýtur það að verða viðfangsefni hv. efnahags- og viðskiptanefndar og síðan Alþingis í heild sinni að afstýra því að 6. gr. verði að lögum vegna þess að hún skapar alveg sérstaka óvissu fyrir fólk sem tekur við greiðslum úr lífeyrissjóðunum. Menn hafa búið við það, a.m.k. frá 1997, að þessar greiðslur væru endurskoðaðar mánaðarlega í ljósi verðbólguþróunar. Nú kemur hæstv. ráðherra með frumvarp sem hann getur ekki einu sinni útskýrt. Hann getur ekki einu sinni útskýrt það aðspurður hvert sé tilefni og hver sé tilgangur breytingarinnar og hann getur ekki svarað því af hverju það fylgja engar greinargerðir um áhrif þess arna á sjóðfélaga og fjárhag lífeyrissjóðanna og hvað þá ríkissjóðs sjálfs sem hann ber ábyrgð á. Að vísa til þess að það séu runnir upp einhverjir nýir tímar, að það sé engin verðbólga og eitthvað svona — við erum nýbúin að sjá hér það sem er í daglegu tali kallað verðbólguskot eða verðbólgugusa eða verðbólguhrina eða hvað það nú er, þessi 4% snemma á þessu ári. Þetta er auðvitað marktæk fjárhæð og fyrir fólk sem lifir við kröpp kjör er það mjög þungt að fá þetta ekki bætt fyrr en að ári liðnu og við erum bara ekkert komin út úr verðbólgu. Ég ætla að leyfa mér að segja við þingheim að enn sé hætta á því að hér (Forseti hringir.) verði meiri verðbólga og ég tala ekki um ef flokkur hv. þingmanns kæmist í ríkisstjórn, vil ég leyfa mér að segja.