151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign.

700. mál
[18:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar hér við 1. umr. að skilja eftir nokkur atriði til umhugsunar, fyrst og fremst auðvitað fyrir hv. efnahags- og viðskiptanefnd, í því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Þetta hefur verið langur ferill og að skoðuðum ýmsum þeim umsögnum sem liggja fyrir í samráðsgátt frá því málið fór þar inn, ég held það hafi verið í júlí 2019, ef ég man rétt, hef ég reynt að lesa það út frá því að enn séu atriði sem ástæða er til að vekja athygli á og hvetja nefndina til að skoða sérstaklega og mig langar að nefna nokkur þeirra.

Með samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins frá 15. júní 2016 var samið um nánari útfærslu á fyrirkomulagi hækkunar á iðgjaldi þar sem kveðið er á um heimild sjóðfélaga til að ráðstafa allt að 3,5% af lágmarksiðgjaldi í bundinn séreignarsparnað sem í þessu frumvarpi hefur fengið heitið tilgreind séreign. Í umsögn Almenna lífeyrissjóðsins í samráðsgáttinni segir, með leyfi forseta:

„Æskilegra hefði verið að gefa sér meiri tíma,“ — með vísan í stöðuna eins og hún var þá — „greina sparnaðarþörf einstaklinga og leggja fram tillögur sem taka mið af henni. Ef breyta á kerfinu er eftirsóknarvert að breytingar miði að því að einfalda kerfið og réttindaöflun frekar en að flækja það eins og nú er lagt til.“

Ég held að þetta sé atriði sem væri æskilegt að hafa í huga við vinnslu málsins í efnahags- og viðskiptanefnd, þ.e. að leita leiða til að einfalda kerfið frekar en að flækja það. Og svona almenns eðlis þá held ég að við ættum að reyna að standa vörð um frelsi einstaklinganna til að ráðstafa þessum viðbótarsparnaði með rýmri hætti en hér er kveðið á um.

Fleiri aðilar ljá máls á einfaldleika, samanber umsögn Íslenska lífeyrissjóðsins þar sem segir, með leyfi forseta:

„Þessi mikli greinarmunur á tilgreindri séreign og séreign af viðbótariðgjaldi flækir lífeyriskerfið að óþörfu. Eðlilegast er að sjóðfélagar geti ráðstafað 3,5% af lágmarksiðgjaldi í viðbótarlífeyrissparnað. Þannig geta aðilar ávaxtað þessa séreign sína á sömu ávöxtunarleiðum og án aðgreiningar og óþarfa flækjustigs.“

Ég vil bara halda því til haga í þessu samhengi og ítreka að þarna er skynsamlegt að einstaklingurinn hafi sem mest frelsi, mest val til að velja þá leið sem honum hugnast best. Ég hef í sjálfu sér ekki áttað mig á með hvaða hætti þau markmið nást fram með útfærslu um tilgreinda séreign í stað þess að viðbótarsparnaðurinn renni inn í séreignina eins og það regluverk er formað í dag.

Með vísan til einföldunar kerfisins er rétt að nefna umsögn SSF í samráðsgáttinni þar sem segir, með leyfi forseta:

„Með áformaðri breytingu á lögum nr. 129/1997 er enn verið að flækja lífeyriskerfið sem mörgum finnst nú þegar nógu flókið, sérstaklega skerðingar lífeyris frá TR vegna eftirlauna frá samtryggingardeildum lífeyrissjóða. Á undanförnum árum hefur löggjafinn gert breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, til einföldunar lífeyriskefisins en með þessu frumvarpi er flækjustigið aftur aukið.“

Allt ber þetta að sama brunni. Það eru áhyggjur hagaðila af því að hér sé verið að flækja kerfið að óþörfu.

Í dag er lögbundið lágmarksiðgjald til lífeyrissjóða 12% af iðgjaldsstofni og til stendur að hækka það í 15,5%. Lífeyrissjóðum er ætlað að veita lágmarkstryggingavernd sem er 56% af mánaðarlaunum, sem sagt meðallaunum, sem greitt er af í 40 ár. Að jafnaði er það 1,4% á ári. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að lágmarkstryggingavernd fari upp í 1,8% á ári að jafnaði eða 72% miðað við 40 ára iðgjaldatíma. Velji sjóðfélagi að ráðstafa 3,5% í tilgreinda séreign lækkar lágmarkstryggingaverndin í 1,4% á ári, til jafns við það sem er í dag að jafnaði eða 56% miðað við 40 ára iðgjaldatíma eins og nú er.

Um þetta segir í umsögn Almenna lífeyrissjóðsins, með leyfi forseta:

„,,Afslátturinn“ styður þá skoðun að óþarfi sé að hækka lágmarkstryggingaverndina og reyndar að lögfesta hækkun á lágmarksiðgjaldi úr 12% af launum í 15,5%.“

Raunar er þessi hækkun á lágmarkstryggingaverndinni að mér sýnist ekki rökstudd sérstaklega í frumvarpinu, en í því samhengi er enn fremur áhugavert að í umsögn Brúar lífeyrissjóðs á samráðsgáttinni er vikið að 3,5% ávöxtunarviðmiðinu. Sumir hafa kallað það núvirðingarkröfu en við skulum notast við ávöxtunarviðmið, það er kannski það sem almennt er notað í því samhengi í umræðunni hér og svo sem víðast. Í umsögn Brúar lífeyrissjóðs er vikið að 3,5% ávöxtunarviðmiðinu og varað við því að hækka lágmarkstryggingaverndina án þess að líta á kerfið í heild sinni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Sú tillaga að breytingu er varðar hækkun upp í 1,8% á ári á lágmarkstryggingavernd sem lífeyrissjóður skal veita kallar á útreikninga tryggingastærðfræðings sjóðsins og mögulega endurskoðun á réttindatöflum hans. Tillagan virðist miða við óbreytt ákvæði reglugerðar nr. 391/1998 er varðar ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða, en undanfarin ár hefur mikil umræða farið fram um ávöxtunarkröfuna og að ekki sé varlegt eða raunhæft að reikna með 3,5% ávöxtun eigna til framtíðar. Stjórn Brúar lífeyrissjóðs telur nauðsynlegt að forsendur lágmarkstryggingaverndar sjóðanna séu skoðaðar í stærra samhengi.“

Í þessu samhengi vil ég í rauninni, eins og ýmsir hafa gert hér fyrr í umræðunni, fagna því sem sagt er frá hér og alla vega í framsöguræðu hæstv. fjármálaráðherra, ég man ekki hvort það er nefnt sérstaklega í frumvarpinu, varðandi fyrirhugaða vinnu um að setja grænbókarvinnu af stað. Þar hlýtur auðvitað að koma sérstaklega til skoðunar þessi 3,5% raunávöxtunarkrafa lífeyrissjóðakerfisins. Ég hef nálgast það á þeim nótum að það hljóti að vera eitthvað bjagað í því ef talið er að heimili landsins og fyrirtæki standi undir mun hærri raunávöxtunarkröfu en atvinnulíf þjóðanna í kringum okkur, þeirra vestrænu þjóða sem við berum okkur saman við. Það getur ekki verið sjálfbært til lengdar. Það hefur áhrif víða í hagkerfinu að sá þrýstingur eða sá grunnur sé settur undir vaxtarófið hér heima sem við erum vissulega og vonandi að losna út úr og margt sem bendir til að það sé að takast. Að sama skapi hlýtur að koma til ígrundaðrar skoðunar í þeirri grænbókarvinnu hvort aldursviðmiðið sem nú er notast við sé sjálfbært til lengdar, bara ef við horfum á lífaldursþróun þjóðarinnar og þar fram eftir götunum. Ég ítreka að ég fagna því að sú vinna verði sett af stað og það mætti eflaust færa rök fyrir því að það hefði verið gott að hún hefði farið fyrr af stað en það ber að fagna áformum um slíkt.

Þessu til viðbótar langar mig að nefna nokkur atriði sem er kannski ástæða til að verði skoðuð sérstaklega í efnahags- og viðskiptanefnd. Það er atriði sem hefur auðvitað verið rætt hér reglulega í umræðunni í dag sem snýr að röksemdinni fyrir því að launafólk eigi ekki að byrja að greiða í lífeyrissjóð fyrr en við 18 ára aldur, sem er 16 ár í dag. Spurningin er: Hvað svo? Hvaða áhrif hefur þetta á laun þess stóra hóps á þessu aldursbili sem er sem betur fer virkur í atvinnulífinu? Er búið að hugsa þetta alveg til enda?

Það er atriði sem hefur verið nefnt nokkrum sinnum í dag og snýr að kjaramálum sjómanna. Þegar samkomulagið er gert í júní 2016 er ekki komin upp sú staða sem síðan hefur raungerst sem snýr að kjarasamningum sjómanna. Það hafa ekki náðst samningar á milli útgerðarmanna og sjómanna, ef ég man rétt var það einhvern tímann um mitt ár 2019 sem fyrri samningar runnu sitt skeið á enda. Ég velti því fyrir mér hvort ástæða sé til að setja inn einhvers lags sólarlagsákvæði út frá því sem kemur fram í frumvarpinu um að það nái ekki yfir þá aðila sem ekki hafa sjálfir, milli launþega og vinnuveitenda, samið um að iðgjaldið hækki um 3,5%. Þá má vera að það sé mislestur en ég held að þarna sé bara um sjómenn að ræða hvað þetta varðar. Ég bara nefni það hvort einhvers lags útfærsla á sólarlagsákvæði kæmi þarna þannig að ekki verði, af því nú er markmiðið að jafna lífeyrisréttinn milli kerfa, einn hópur utan kvóta til svona langs tíma.

Hér hefur verið nokkur umræða um 6. gr., þ.e. að lífeyririnn sé ekki verðtryggður jafnóðum mánaðarlega heldur einu sinni á ári. Mig langar kannski að nefna í öðru samhengi rökstuðninginn fyrir því, eins og segir um 6. gr. í frumvarpinu, með leyfi forseta:

„Er í því sambandi m.a. horft til samspils lífeyrissjóðakerfisins og kerfis almannatrygginga við útgreiðslu ellilífeyris en breytt framkvæmd getur dregið verulega úr kröfum Tryggingastofnunar ríkisins um endurgreiðslur vegna vanáætlunar á greiðslum frá lífeyrissjóðum í byrjun árs.“

Ættum við ekki á tækniöld að hafa einhverjar aðrar leiðir til að draga úr eða áætla með nákvæmari hætti? Það væri auðvitað á herðum Tryggingastofnunar ríkisins að finna lausn á því. En ættum við ekki að hafa einhverjar haganlegar leiðir til að meta þetta með nákvæmari hætti en er í dag og virðist vera notað sem sérstakur rökstuðningur fyrir því að fara yfir í það að verðbæta einu sinni á ári? Ætti kerfið ekki að hafa leiðir til að áætla þetta með nákvæmari hætti þannig að þessi árlegu vandamál, um endurgreiðslur vegna vanáætlunar, séu ekki að koma upp með þeim óþægindum sem þeim fylgja?

Ég vil undir lok ræðu minnar ítreka að haft verði í huga að leita leiða til að einfalda kerfið frekar en flækja það, að valfrelsi einstaklinganna verði sem mest. Ég fagna því að unnið sé að því að jafna réttindi milli kerfa, það held ég að sé mikilvægt markmið. Við þekkjum frá fyrri tíð mikinn mun á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna og starfsfólks í einkageiranum, svo maður taki nú bara mjög breiða línu í þeim efnum. Það markmið er gott og jákvætt að verið sé að vinna að því. Ég fagna grænbókarvinnunni sem er fram undan en ítreka: Tryggjum sem mest valfrelsi fyrir einstaklingana og reynum að einfalda kerfið frekar en að flækja það.