breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar .
Virðulegi forseti. Já, ég tek undir það með hv. þingmanni að það er margt til bóta í því í frumvarpi sem hér liggur fyrir frá því lagaumhverfi sem nú er, sérstaklega varðandi það sem það snýr að, hvað á ég að segja, áralöngu umkvörtunarefni Fiskistofu, fiskveiðieftirlitsins, um að það skorti skynsamlega skilgreiningu á raunverulegum yfirráðum og tengdum aðilum, að fá þá skilgreiningu sem hægt væri að vinna eftir. Eins og hv. þingmaður man eflaust jafn vel og ég var það rækilega undirstrikað í skýrslu Ríkisendurskoðunar að það væri forgangsatriði að reyna að búa svo um hnútana að þetta hugtak yrði skilgreint. Og við göngum til þess verks.
Nefndin, sem hv. þingmaður nefndi, komst í störfum sínum að þeirri niðurstöðu og gerði tillögu um það sem fór í samráðsgáttina, það er hárrétt munað hjá hv. þingmanni, um miklu nákvæmari útlistun á einstökum þáttum þess hvað fælist í tengdum aðilum, sem við erum ekki að taka upp í því frumvarpi sem liggur fyrir. Við höfum hins vegar afmarkað hugtakið „raunveruleg yfirráð“ hér með tveimur sérstökum nýjum málsgreinum sem bætast við 13. gr. þar sem við erum í rauninni að skilgreina og gefa fiskveiðieftirlitinu mun meiri leiðbeiningar um það hvaða skilning á að leggja í hugtakið „raunveruleg yfirráð“ og „tengda aðila“ þegar við horfum til orðsins í hlutafélagarétti. Niðurstaða okkar í ráðuneytinu eftir allan þennan tíma og eftir þetta samráð var að búa þetta í þennan búning þannig að það væri í grunninn hið heildstæða mat sem eftirlitsstofnanir okkar eiga að leggja á um möguleika á því að vera með yfirráðin raunveruleg og þessar tengingar. Það var því niðurstaða okkar að búa málið á þann veg sem það birtist hér í frumvarpinu.