breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar .
Herra forseti. Ég vona að hv. atvinnuveganefnd fari vandlega yfir þessar breytingar, því að eins og ég les lagatextann þá eru enn þá inni mjög matskennd atriði. Það væri miklu betra að hafa hlutina skýra, eins og verkefnisstjórnin lagði til, og leita í smiðju hjá lögum um fjármálafyrirtæki. Þar eru fyrirmyndirnar og þar eru fordæmin og það er auðvelt að fara eftir þeim viðmiðum. Þannig að ég held, forseti, að það verði að gera breytingar á þessari grein og vona að hv. atvinnuveganefnd skoði það vandlega.
En ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji í raun að þetta gangi upp að áfram sé gert ráð fyrir meirihlutaeign til þess að teljast tengdur aðili þannig að maður getur átt eða haft yfirráð yfir 12% af kvótanum eða fénýtt hann, og síðan getur maður átt 49,99% í öllum öðrum fyrirtækjum sem ráða yfir kvóta. Þannig geta yfirráðin og samþjöppunin í raun orðið ógnarmikil í þessari mikilvægu atvinnugrein þar sem fiskveiðiauðlindin okkar er fénýtt. Hefði ekki verið betra að miða við 25%, sem er skilgreining á raunverulegum eigendum, og sem eru líka upplýsingar sem eru aðgengilegar almenningi og viðmið sem hafa verið samþykkt nýlega í lögum t.d. um peningaþvætti?