breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar .
Herra forseti. Ég vil fyrst segja að ég tel að hér sé mjög mikilvægt frumvarp komið fram, frumvarp sem við höfum svolítið beðið eftir og ég held að vinnan sem fram undan er hjá atvinnuveganefnd — ég vona að atvinnuveganefnd taki þetta frumvarp og setji í forgang og rýni vel og við fáum tækifæri til að setja fram þær breytingartillögur okkar sem við teljum þörf á og afgreiða áður en þessu þingi lýkur. Þarna er umgjörð um eftirlit með fiskveiðiauðlindinni og umgjörðin hefur ekki verið nægilega góð. Því miður sýnist mér að ýmsir vankantar séu á þessu frumvarpi sem ég fagna þó að sé komið fram. En við höfum þá tækifæri til að koma með breytingartillögur og bæta stöðuna.
Það var þannig, forseti, að haustið 2017 var fréttaþátturinn Kveikur með fréttaskýringu um brottkast og tók m.a. viðtal við forstöðumann Fiskistofu í þeim þætti. Þar sagði þáverandi forstöðumaður beint út að það væri bara þannig að Fiskistofa gæti ekki sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu. Það var auðvitað mjög alvarlegt að þannig væri fyrir þessari mikilvægu eftirlitsstofnun komið og þess vegna samdi ég skýrslubeiðni og lagði hana fram á Alþingi ásamt fleiri þingmönnum um að Ríkisendurskoðun myndi gera úttekt á störfum Fiskistofu og þeim björgum sem hún hefði til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Ríkisendurskoðun skilaði síðan 2018 ágætri skýrslu sem unnið var áfram með í verkefnastjórn á vegum hæstv. ráðherra. Ég fékk að vera í þeirri verkefnastjórn og það var afskaplega lærdómsríkt og þar fengum við góðar upplýsingar sem munu nýtast inn í þetta starf.
Ég vil fara með nokkur orð úr skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um tengda aðila. Eitt af því sem við þurfum að fara vel yfir, eins og við töluðum um áðan í andsvörum, viðkemur 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða og snýr að tengdum aðilum og því sem við köllum raunveruleg yfirráð. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir, með leyfi forseta:
„Fiskistofa telur stofnunina hafa uppfyllt eftirlitsskyldu sína með samþjöppun aflaheimilda. Hún telur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti hafa sýnt viðleitni til þess að styðja stofnunina í eftirlitinu en að sú viðleitni hafi þó ekki leitt til nauðsynlegra breytinga á ákvæðum 13. gr. laga um stjórn fiskveiða.
Í minnisblaði skrifstofu sjávarútvegs- og fiskeldis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 18. janúar 2016 sagði að á fundi með Fiskistofu 14. desember 2015 hefði komið fram að stofnunin framfylgdi ekki lengur verklagsreglum sem var ætlað að tryggja markvissa framkvæmd 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða. Lögfræðingar stofnunarinnar hefðu „fyrir nokkrum árum“ komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði 13. gr. laganna um tengda aðila og „raunveruleg yfirráð væru í raun óframkvæmanleg“. Starfsmenn Fiskistofu hefðu greint starfsfólki ráðuneytisins frá þessu munnlega og fiskistofustjóri auk þess tekið í svipaðan streng fyrir svonefndri sáttanefnd um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða árið 2010. […]
Samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar má rekja tilraunir starfsmanna Fiskistofu til að skilgreina nánar hugtökin „tengdir aðilar“ og „raunveruleg yfirráð“ aftur um rúman áratug.“
Það er auðvitað bara hneyksli, leyfi ég mér að segja, að ekki hafi verið reynt að grípa til úrræða þannig að hægt væri að framfylgja því sem stendur í 13. og 14. gr. laga og öll þessi ár hafi þurft að líða þangað til frumvarp kom fram um þessi efni.
Ég vil, forseti, benda á frumvarp sem ég er fyrsti flutningsmaður að og liggur hér fyrir þinginu en hefur ekki fengið að komast á dagskrá, sem er nákvæmlega um þessar greinar, 13. og 14. gr. í lögum um stjórn fiskveiða. Ég leyfi mér að fara aðeins yfir greinargerðina á þeim tíma sem ég hef hér til umráða.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, eins og ég sagði áðan, um tengda aðila og raunveruleg yfirráð. Frumvarpið, og nú er ég að tala um frumvarpið mitt en ekki frumvarp hæstv. ráðherra, (Gripið fram í.) miðar að því að hrinda í framkvæmd tillögum verkefnastjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni sem verkefnastjórnin skilaði til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 30. desember 2019. Verkefnastjórninni var m.a. falið að bregðast við ábendingum í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu er varðar samþjöppun aflaheimilda, en þegar ég samdi þetta frumvarp og þessa greinargerð var hæstv. ráðherra ekki búinn að leggja það frumvarp fram sem við ræðum hér.
Í 13. gr. laga er fjallað um hámarksaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila. Frá því að reglur um hámarksaflahlutdeild voru fyrst lögfestar hefur orðið samþjöppun á aflahlutdeildum og fara nú tíu stærstu útgerðarfélög landsins með meira en helming aflahlutdeilda. Samhliða þeirri þróun hefur aðilum í sjávarútvegi fækkað ört. Útgerðir sem réðu yfir aflahlutdeildum voru 946 í upphafi fiskveiðiársins 2005/2006 en þeim hafði fækkað niður í 382 árið 2019. Í skilgreiningu laganna á hugtakinu „tengdir aðilar“ er miðað við að aðilar séu tengdir eigi annar aðilinn beint eða óbeint meiri hluta hlutafjár eða stofnfjár í hinum aðilanum eða fari með meiri hluta atkvæðisréttar. Þannig getur einn aðili farið með hámark leyfilegrar aflahlutdeildar samkvæmt 1. mgr. 13. gr., en þar að auki átt allt að 49,99% hlut í öðrum fyrirtækjum sem fara með aflahlutdeildir samkvæmt lögunum. Ljóst er að slíkt eignarhald gengur gegn markmiðum laganna auk þess sem skilgreiningin er í ósamræmi við skilgreiningu raunverulegra eigenda samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018. Samkvæmt þeim lögum telst m.a. til raunverulegra eigenda einstaklingur sem í raun á eða stjórnar lögaðila í gegnum beina eða óbeina eignaraðild að meira en 25% hlut í lögaðilanum, ræður yfir meira en 25% atkvæðisréttar eða telst á annan hátt hafa yfirráð yfir lögaðila. Sá munur sem er á skilgreiningu eignatengsla samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða og lögum um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skýtur skökku við, enda getur aðili talist raunverulegur eigandi lögaðila án þess að teljast „tengdur aðili“ samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða.
Í tillögum verkefnastjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni eru lagðar til breytingar á skilgreiningu laganna á hugtökunum „tengdir aðilar“ og „raunveruleg yfirráð“ þannig að hægt sé að ná fram skilvirkara eftirliti með reglum um hámarksaflahlutdeild. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu kemur fram að við framkvæmd laga um stjórn fiskveiða hafi komið í ljós erfiðleikar við að staðreyna að um tengda aðila væri að ræða þrátt fyrir vísbendingar um slík tengsl þar sem kveðið væri á um raunveruleg yfirráð. Lagði verkefnastjórnin til að skilgreining tengdra aðila yrði látin ná til hjóna, sambúðarfólks og barna þeirra og að ákveðin stjórnunarleg tengsl milli fyrirtækja leiddi til þess að fyrirtæki væru talin tengd, nema sýnt væri fram á hið gagnstæða.
Herra forseti. Það er þessi skilgreining sem vantar í frumvarpið sem hæstv. ráðherra mælti fyrir áðan.
Að auki lagði verkefnastjórnin til að skilgreint yrði hvað fælist í raunverulegum yfirráðum og að kveðið yrði á um að aðilar sem réðu meira en 6% af aflahlutdeild eða 2,5% af krókaaflahlutdeild skyldu tilkynna til Fiskistofu áætlaðan samruna, kaup í félagi sem réði yfir aflahlutdeild eða kaup á hlutdeild. Samþykki Fiskistofu fyrir slíkri ráðstöfun væri forsenda samruna eða kaupa í félagi eða kaupa á hlutdeild og kæmi ráðstöfunin ekki til framkvæmda fyrr en Fiskistofa hefði samþykkt hana.
Í frumvarpinu, sem ég er fyrsti flutningsmaður að, eru lagðar til breytingar á skilgreiningu hugtaksins „tengdir aðilar“ í lögum um stjórn fiskveiða. Í 1. tölulið 4. mgr. gildandi laga er kveðið á um að aðilar séu tengdir þar sem annar aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, á beint eða óbeint meiri hluta hlutafjár eða stofnfjár í hinum aðilanum eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar.
Eins og ég sagði áðan þá leggjum við sem erum flutningsmenn að þessu frumvarpi til að þessi hlutur verður færður niður í 25%. Það er mjög einfalt fyrir Fiskistofu að hafa eftirlit með þessu ef raunverulegur eigandi er bara eins og hann er skilgreindur í lögum og Alþingi hefur samþykkt á árinu 2018. Ef hluturinn er 25% sem þú átt í fyrirtæki eða félagi ert þú raunverulegur eigandi. Þá um leið ættir þú að teljast tengdur aðili. Það skýtur svo skökku við að þú teljist samkvæmt lögum raunverulegur eigandi en samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða ertu samt ekki tengdur aðili. Þá þarftu að eiga miklu meira. Þessi túlkun og þetta ráðslag verður til þess að hér verður samþjöppun í greininni, sem er ekki æskileg. Hér á landi eru nokkrar útgerðir svo stórar að þær eru að teygja anga sína út í margar aðrar atvinnugreinar og hættan er sú, og á það hefur margoft verið bent, að þegar fyrirtæki eru orðin svona stór og hafa svona mikil áhrif í samfélaginu þá eru þau orðin of valdamikil. Þess vegna ættum við að vinna gegn samþjöppuninni, hafa hlutina skýra, tala tæpitungulaust um hvernig við viljum að farið sé með og gengið um auðlindina okkar og vinna gegn samþjöppun um leið og við verjum byggðir landsins fyrir mikilli röskun því að þegar kvótar ganga kaupum og sölum þá vitum við alveg hverjir það eru sem bera kostnaðinn af þeirri hagræðingu sem fyrirtækin eru kannski að fara í. Það eru sjávarbyggðirnar sem bera kostnaðinn á meðan útgerðirnar græða á hagræðingunni. Hagræðingin er auðvitað góð og hún skilar sínu en henni þurfa að vera takmörk sett. Það er reynt að gera í frumvarpinu sem við ræðum hér en ég ítreka að það þarf að skýra 13. og 14. gr. laga um stjórn fiskveiða mun betur en gert er í frumvarpinu sem hæstv. ráðherra mælti fyrir áðan. En enn og aftur segi ég: Ég fagna því að við fáum tækifæri til að ræða þetta mikilvæga mál sem varðar fiskveiðiauðlindina okkar allra.