endurskoðuð landsskipulagsstefna 2015--2026.
Herra forseti. Eins ágæt og Skipulagsstofnun er eru leiðbeiningar hennar ekki endilega sterkasta verkfærið sem ríkisstjórnin hefur í verkfærakistunni. Leiðbeiningar Skipulagsstofnunar eru, leyfi ég mér að segja, ekki örugg leið til að ná fram því markmiði að allar áætlanir sem snerta skipulagsmál á borði stjórnvalda verði metnar út frá loftslagsmálum. Svo að ég nefni bara samgönguáætlun þá eru sérstök lög um hana þar sem kemur fram hvaða markmiðum sú áætlun þurfi að ná. Þar væri hægðarleikur að setja inn loftslagsmarkmiðin, að það verði bara skýrt markmið í þeim lögum. Mig langar að vita hvort þetta hafi verið rætt á milli ráðuneytanna vegna þess að markmið hjá umhverfisráðuneytinu, sem birtist í leiðbeiningum Skipulagsstofnunar, mun ekki halda gagnvart samgönguáætlun sem heyrir undir annað ráðuneyti nema við bindum það fastar í reglur og þá helst lög.
Hæstv. ráðherra bendir hér á þá stórfurðulegu stöðu að til þessa hafi verið óljóst hvort mat á umhverfisáhrifum áætlana ætti að fela í sér mat á áhrifum á loftslagsmál og sannarlega fagnaðarefni að það standi til bóta með frumvarpi sem er á dagskrá hér seinna í kvöld. En þetta vekur óneitanlega athygli í ljósi svara samgönguráðherra þegar hann var spurður um það hvort ekki væri slæm yfirsjón að hafa sleppt því að loftslagsmeta samgönguáætlun, þegar hann mælti fyrir henni hér í þingsal, og hann (Forseti hringir.) vísaði til mats á umhverfisáhrifum áætlana en samkvæmt umhverfis- og auðlindaráðherra (Forseti hringir.) þyrfti að breyta lögum til að það næði yfir loftslagsmál. Enn og aftur holast innan úr þessu fallega (Forseti hringir.) markmiði stjórnarsáttmálans um að loftslagsmeta allar stærri áætlanir ríkisins.