endurskoðuð landsskipulagsstefna 2015--2026.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa framlagningu og ræðu hans. Ég verð því miður að viðurkenna að ég er ekki alveg búin að lesa þetta í þaula heldur meira svona að skanna það. Ég ætla að byrja á því að segja að mér hugnast mjög vel nálgunin varðandi loftslagsmálin og hversu mikilvæg þau séu. Þá ætla ég sérstaklega taka fram myndina á bls. 24 en þar er talað um minni losun, sem við verjum oft miklum tíma í, enda mjög þarft og mikilvægt. Svo tölum við um meiri bindingu, sem er líka mikilvægt, og það er í töflunni. Svo er aðlögun að breytingum, ofboðslega mikilvægt að það sé komið inn. Það þarf einmitt að vera þarna því það er svo margt í skipulagsmálum okkar sem við verðum að huga að, búandi á norðurslóðum þar sem breytingarnar eru að verða svo gígantískar. Það er mjög mikilvægt. Taflan á bls. 36 sýnir svo ekki verður um villst hvað loftslagsváin getur haft mikil áhrif á Íslandi, á öll okkar mannvirki og mannslíf. Mig langar því að fagna þessu sérstaklega. Það er einmitt mikilvægt að við leggjum áherslu á þetta í umræðunni.
Það sem mig langaði aftur á móti að spyrja um er sérstakt áhugamál mitt, ég hef talað alloft fyrir því og gerði það líka áður en ég tók sæti á þingi vegna þess að ég vann svo lengi að skipulagsmálum í sveitarfélagi. Ég hefði viljað sjá í landsskipulagsstefnu að þar væru ákveðnir grunninnviðir festir niður. Með því meina ég að landsskipulagsstefna eigi að vera eitthvað sem svæðisskipulag byggir á og svo aðalskipulag sveitarfélaganna og að það sem við tölum um sem grunninnviði sem fara á milli sveitarfélaga — við getum talað um vegi, mikilvægar rafmagnslínur eða veitur, jafnvel flugmannvirki eða hafnarmannvirki — sé fest niður í landsskipulagsstefnu.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur þessa hugmynd eða nálgun ekki borið á góma í vinnu við landsskipulagsstefnu?