151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

endurskoðuð landsskipulagsstefna 2015--2026.

705. mál
[21:32]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hv. þingmaður kemur inn á atriði sem mér finnst í sjálfu sér tilefni í langa umræðu. Við höfum kannski rætt það áður hvort ákveðnir grunninnviðir, eins og hv. þingmaður nefndi, vegir, rafmagnslínur og fleira, ættu í rauninni að lúta hið minnsta frekari tilmælum ríkisins eða jafnvel að gengið sé lengra, sem stundum hefur verið rætt, að þeir eigi hreinlega að heyra undir skipulagsvald ríkisins. Þetta er angi af þeirri umræðu. Varðandi umræðu um þetta í tengslum við gerð endurskoðaðrar landsskipulagsstefnu var það ekki rætt sérstaklega svo að ég viti til. Alla vega var ekki gengið út frá því að hún ætti að takast á við þessi verkefni. Hún átti að taka og tekur fyrst og fremst fyrir loftslagsáhrif, mat á loftslagsáhrifum skipulagsáætlana, tilmæli til sveitarfélaga um að meta það, og það sem snýr að landslagi og það sem snýr að lýðheilsu og vellíðan. Þannig að svarið er að það var ekki hluti af þessari vinnu að þessu sinni.