endurskoðuð landsskipulagsstefna 2015--2026.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem ég ræði þetta hér. Ég ætla að ítreka að mér finnst margt mjög gott í þessari stefnu en ég beini kannski frekar sjónum að því hvað mér finnst vanta. Ég vil þá beina því til hv. umhverfis- og samgöngunefndar að huga aðeins að þessum þætti. Við höfum einmitt rætt það hér í margvíslegu samhengi, eins og hæstv. ráðherra kemur inn á, það ber reglulega á góma og er þá spurningin um sjálfstæði sveitarfélaganna. En það er bara svo flókið þegar mannvirki fara yfir þessar línur á milli sveitarfélaga. Það er ofboðslega bagalegt, þó að ekki sé dýpra í árinni tekið, hvað okkur miðar oft illa áfram í að tryggja grunninnviði. Við virðumst hafa búið til þannig kerfi að þetta flækist endalaust á milli. Nú ætla ég að biðja þá sem á hlýða og virðulegan forseta að misskilja mig ekki um mikilvægi þess að við leggjum mat á umhverfisáhrif framkvæmda og að þar sé vel að öllu staðið og vel útfært. En í skipulagsmálum hefur okkur eiginlega tekist að byggja endalaust utan um regluverkið. Skoðun mín er því orðin sú að þetta sé kerfi sem vinnur fyrir kerfið og í kringum kerfið og að fólkið hafi svolítið gleymst í þeim efnum. Þess vegna er þetta kannski frekar hvatning til þess að á sama tíma og við einblínum á þau mikilvægu verkefni sem liggja fyrir hér í þessu svæðisskipulagi sé næsta skref að horfa til þess hvort ekki sé hreinlega skynsamlegt að ákveðnir grunninnviðir séu tilgreindir í svæðisskipulagi. Ég efast ekki um að ekki yrðu allir sammála um það og við gætum örugglega rifist um það í svolítinn tíma. En kannski væri betra að leggja á sig slík átök einu sinni og tryggja þessa innviði í stað þess að við þurfum að takast á um þá í hvert skipti þegar um slíkt er að ræða.