151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

709. mál
[21:56]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er sannarlega ekki vanþörf á að fá almennilegan ramma utan um leyfisveitingar til að reisa vindorkuver hér á landi. Þetta er því tímabært frumvarp, svo ekki sé meira sagt, en það eru nokkur atriði sem mig langar að spyrja ráðherra nánar út í. Þau hafa komið fram á fyrri stigum, í umsögnum, þannig að ráðherra gefst tækifæri til að hjálpa okkur til að glöggva okkur á álitaefnum sem ráðuneytið hefur tekið afstöðu til en þingið gæti viljað bregðast öðruvísi við. Það eru í fyrsta lagi stærðarmörkin. Í 2. gr. frumvarpsins er miðað við 10 MW eða meira af uppsöfnuðu uppsettu rafafli til að falla undir lögin. Ég spyr einfaldlega: Er það ekki dálítið hátt? Er það ekki dálítið mikið? Ef þetta væri ein vindmylla væri hún þreföld Hallgrímskirkja að stærð, á að giska. Hún myndi sjást ansi víða að og hafa mikil áhrif. Ég er ekki endilega að velta því fyrir mér að við verðum við athugasemdum fulltrúa úr faghópi 2 í 4. áfanga rammaáætlunar, sem leggja til að það séu engin mörk, að allar vindmyllur séu einfaldlega hluti af þessu ferli, óháð stærð, heldur kannski bara einhver lægri mörk, eins og 3 MW sem eru nefnd í sumum umsögnum. Þær myllur eru ekkert litlar heldur. Ég nefnilega óttast að of há mörk gætu sett okkur í sömu stöðu og t.d. með vatnsaflsvirkjanir, sem eru allt í einu mjög oft hannaðar sem 9,9 MW og eru bara fjandi stórar.