151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:17]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er á tengdum nótum við andsvar í frumvarpinu sem mælt var fyrir hér áðan en ný atriði þó. Mig langar að spyrja ráðherrann út í fleiri skilgreiningar á þeim mörkum sem eru sett hérna. Faghópur tvö í 4. áfanga rammaáætlunar skilaði inn umsögn á fyrri stigum og gagnrýndi þau mörk sem eru dregin frá friðlýstum svæðum sem mörk þess svæðis þar sem ekki má reisa vindorkuver. Í tillögu ráðherrans er miðað við 10 km fjarlægð frá friðlýstu svæði en faghópur tvö segir að það sé fráleitt. Ég kann að meta það, herra forseti, þegar fólk talar skýrt, og fráleitt segja þau að tala um 10 km og leggja til 40 km radíus út frá friðlýstum svæðum. Það segir hópurinn ekki út í loftið vegna þess að þetta er hópurinn sem hefur metið áhrif vindorkuvera í 3. áfanga rammaáætlunar og 4. Faghópurinn segir í umsögn sinni að vindmyllur sjáist úr allt að 48 km fjarlægð, og væntanlega, miðað við hvernig tæknin þróast, miðað við það að nýrri vindmyllur verða alltaf hærri og hærri, þá eru frekar líkur á að sjónrænu áhrifin fari að ná lengra eftir því sem fram vindur.

Þess vegna langar mig að spyrja ráðherrann einfaldlega: Fyrst faghópur tvö, fólkið sem metur áhrif virkjana á ferðamennsku og útivist, fólkið sem ráðherrann vísaði til í framsöguræðu sinni, (Forseti hringir.) segir að þetta sé fráleitt, af hverju er lagt til að miða við 10 km?