151. löggjafarþing — 77. fundur,  13. apr. 2021.

staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.

707. mál
[22:20]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er rétt sem fram kemur hjá hv. þingmanni að þetta var afstaða faghóps tvö í umsagnarferlinu. Ástæðan er kannski sú að ég held að það megi færa fyrir því rök að 10 kílómetrarnir nái yfir kannski allra mestu áhrifin af vindmyllum en vissulega sjást þær mun lengra, eins og hv. þingmaður nefndi, þar sem aðstæður eru þannig, þar sem landslag er opið og vítt.

Á 10 km radíus í kringum friðlýst svæði kemur þetta til skoðunar. Ef það er þá mat verkefnisstjórnar að þarna sé um að ræða óásættanleg áhrif inn á hið friðlýsta svæði þá hlýtur það að verða niðurstaða hennar að ekki beri að ráðast í að reisa vindmyllur á þessum svæðum. Það er líka hægt að bregðast við því af hálfu framkvæmdaraðila að leggja til að hafa lægri vindmyllur nær friðlýstum svæðum því að þá verða áhrifin minni. Séum við komin út fyrir 10 kílómetrana, ef slíkt svæði fellur þá í flokk 3 en gæti fallið í flokk 2 af einhverjum öðrum ástæðum en að vera í meira en 10 km fjarlægð frá friðlýstu svæði, þá kemur það til kasta sveitarstjórnar að meta áhrif af því í skipulagi og í mati á umhverfisáhrifum sem má segja að taki við af rammaáætluninni.