staðsetning vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands.
Herra forseti. Þegar ég hlustaði á hæstv. ráðherra lýsa því hvernig þetta ferli gæti litið út þá var eiginlega það fyrsta sem mér datt í hug varúðarreglan. Ef það getur mögulega verið einhver hluti vindorkuvera þar sem þarf að skoða sérstaklega sjónræn áhrif frá ellefta kílómetra upp í þann fertugasta eins og faghópur tvö leggur til, segir ekki varúðarreglan að við ættum að sníða lögin þannig? Ef áhrifin eru sama og engin utan 10 km þá bara kemur það í ljós. Þá erum við búin að sinna okkar skyldum sem ábyrgir vörslumenn landsins og fólk sem vill halda varúðarregluna í heiðri.
En vegna þess að ráðherrann nefndi einmitt hvernig ferlið gæti síðan haldið áfram eftir því hvaða flokki svæðið utan ellefta kílómetra í radíus frá virkjunarhugmynd gæti tilheyrt, þá verð ég að nefna aðra ábendingu faghóps tvö varðandi það að fella brott hugmyndina um flokk 3. Flokkur 3 er einhver fyrir fram ákveðinn nýtingarflokkur þar sem ekki þarf að fara í gegnum ferlið. Ég skil hugmyndina, ég skil alveg að fólk vilji losna úr pattstöðunni sem fyrri rammaáætlanir hafa lent í, en er ekki lausnin á þeirri pattstöðu að laga ferlið frekar en að ýta því alveg til hliðar? Það er alla vega það sem kemur fram í umsögn faghóps tvö, að það sé mjög mikilvægt að halda áfram á þeirri braut sem unnið hefur verið á undanfarin ár og standa vörð um rammaáætlun sem stjórntækið sem meti almannahagsmuni í tengslum við virkjanir. Gerir flokkur þrjú það?